Úrval - 01.03.1979, Side 78
76
ÚRVAL
stöðugur straumur sovéskra flutn-
ingaskipa, sem flytja hergögn til
kommúnistaríkjanna Suðurjemen og
Eþíópíu, og hafna við Indlandshaf. í
bakaleiðinni flytja þessi skip hvað
sem er á fáránlega lágu flutnings-
gjaldi — allt niður í 30% af því sem
frjáls skipafélög bjóða lægst. ,,Við
flytjum hvað sem er fyrir hvað sem er
fremur en sigla tómir til baka,” sagði
einn sovésku skipstjóranna. Og
sovétmenn græða á þvf að kippa
flutningsgjöldunum frá skipa-
félögum frjálsa heimsins, og grafa
þannig undan efnahag
keppiþjóðanna.
Þriðji meginávinningurinn liggur í
njósnunum. Undir viðskiptayfirskini
hefur Moskva sett upp flutningaskrif-
stofur í öllum meiri höfnum
heimsins, og flestar eru mannaðar
rússum. ,,Við skulum ekki láta
blekkja okkur,” segir hátt settur
foringi í vesturevrópskri gagnnjósna-
þjónustu. ,,Að minnsta kosti 20% —
stundum 30% af rússneska starfs-
liðinu eru þjálfaðir njósnarar, sem
sendir eru sérstaklega til njósna.” I
Hamborg einni eru sex sovéskar
skipaskrifstofur með um 50 manna
rússnesku starfsliði, og þar í hópi eru
háttsettur liðsforingi í GRU, sovésku
hernjósnaþjónustunni. í skrifstofum
hér og þar í Vesturþýskalandi lokka
sovétmenn flutning frá framleiðend-
um að viðkomandi svæðum, og fá um
leið nákvæmt yfirlit um iðnað og
verslun öflugustu þjóða Vestur-
evrópu. Þvrlíkar upplýsingar eru
Sovétríkjunum gríðar mikils virði,
bæði í friði og stríði, og sama gerist í
öllum hinum löndunum 14, þar sem
sovétmenn hafa skipaskrifstofur.
Það þarf engar leynilegar útvarps-
sendingar eða skilaboð skrifuð með
ósýnilegu bleki til þess að koma
þessum upplýsingum öllum heim til
Moskvu. í afar fáum — ef nokkrum
— hinna meiri hafna Vesturevrópu,
fylgjast lögreglan eða útlendingaeftir-
lit með ferðum sovésku
sjómannanna. Það er því barnaleikur
fyrir njósnara að fara frá borði og
hverfa í fjöldann á götunum. Það er
rétt jafn auðvelt að skálma upp land-
ganginn á sovésku skipi og halda
heim á leið með því. Og ef njósnarar
geta farið óhindraðir frá og að borði,
er jafn auðvelt að skjóta kössum með
ólöglegum skjölum um borð eða frá
borði, rafeindatækjum, byssum og
skotfærum.
Tilraunir vestrænna skipafélaga til
að verjast sovésku hættunni hafa
hingað til reynst árangurslausar.
Sendinefnd eftir sendinefnd hefur
haldið til Sovétríkjanna og snúið til
baka full af loforðum, sem svikin eru
jafnharðan, og innantómum
afsökunum. Efnahagsbandalagslönd-
in hafa nú til athugunar sameigin-
legar gagnaðgerðir allra þátttöku-
landanna, en lítið hefur áunnist.
Varnaraðgerðir hafa aðeins verið
lauslega ræddar í þingnefndum
bandaríkjaþings.
Ef kveða skal rússnesku hættuna
niður, þarf stórtækar aðferðir. I fyrsta