Úrval - 01.03.1979, Síða 82

Úrval - 01.03.1979, Síða 82
80 ÚRVAL við höldum áfram að fylgjast náið með því — en á fjórum árum hefur það ekki valdið frekari vandræðum og hefur ekki stækkað. •Ef svo virðist sem ég hafi orðið vitni að kraftaverkum, vil ég taka fram að ég held ekki að svo sé. Vissulega hef ég oft lent í mjög hættulegum uppskurðum mörgum þeirra vonlausum, að því er virtist — þar sem sjúklingar mínir hafa lifað af og náð bata, mér til furðu. En ég sé engin , .kraftaverk” 1 þessari velgengni. Eg held ekki að þau hefði getað gerst, ef ekki hefði verið hægt að leggja fram allt það besta sem samanlögð læknavísindin eiga í fórum sínum. En líkurnar móti því að árangur næðist voru svo yfir- þyrmandi, að ég trúi því statt og stöðugt, að það hefði ekki getað gerst ef ekki hefði komið til guðleg forsjón við ákvarðanatöku og beinlínis í sjálfum læknisaðgerðunum. Margir rannsóknarvísindamenn tapa guðstrúnni eftir því sem þekking þeirra eykst. Mér er hins vegar öfugt farið. Reynsla mín með sjúklingum mfnum, og í taugarannsóknum mínum, þeirri viðleitni að afhjúpa leyndardóma heilans, hafa vakið með mér æ meiri lotningu fyrir heilanum. Og ég á ekki annarra kosta völ en að viðurkenna tilvist háleitrar visku, almættis, sem skapað hefur og þróað þetta ótrúlega líffæri — nokkuð, sem er langt handan skilningsgetu mannsins. Hugsið ykkur bara þetta dásamlega llffæri. Stórkostlegasta tölva, sem maðurinn getur nokkurn tíma saman sett, getur aldrei komist í hálfkvisti við þennan hlaupkennda vefjakökk, sem vigtar um það bil eitt og hálft kíló. Það er svipað „landslag” á flestum heilum; litlar hæðir og þröngir dalir, skreytt með rauðum og bláum ám og lækjum. En einhvers staðar inni í þeim er það sem gerir hvert okkar sérstakt. Því heilinn er aðsetur hugans, kjarna okkar. Og um tengslin milli heila og hugar, sambandið milli geymslu og þess sem geymt er, vita vísindin sára lítið. Ég.er sannfærður um, að heilinn er aðsetur mannsandans, sálarinnar. Þess vegna er heilinn helgur staður í mínum augum. Samt getur hann orðið fyrir meiðslum og veikindum, og stundum er óhjákvæmilegt fyrir okkur að ryðjast inn í hann og leita í djúpum hans að æxlum, blæðingum og bólgum. Mér finnst það næstum trúarathöfn að vinna þetta verk, og það krefst mestu leikni, sem mannshugurinn getur látið í té. Eg gæti ekki unnið þetta starf, ef trúin styrkti mig ekki til þess. Ég man eftir undurfögrum vordegi fyrir langa-langa-löngu, þegar ég var kallaður til ráða um tilfelli rúmlega þrítugs manns, sem var með illkynja heilaæxii. Stofan hans var full af litskrúðugum, heimagerðum kortum með óskum um góðan bata, og á mörgum þeirra var mynd af lítilli, fallegri, dökkhærðri stúlku, sem hafði skrifað hjá myndinni af sér;
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.