Úrval - 01.03.1979, Síða 87
SVISSNESKA SAMBANDIÐ
85
hann séð Bandaríkin, nokkrum
kílómetrum norðar. Hann var
grannvaxinn, klæddur samkvæmt
nýjustu tísku, og heíði getað gengið
fyrir vel heppnaðan rokktónlistar-
mann. 1961 kom hann allslaus til
Miami, kúbanskur flóttamaður.
Hann hafði unnið sem verslunarstjóri
í blómabúð, afgreiðslumaður 1 fata-
búð, og meðan hann gekk í háskóla
hafði hann unnið sem sendimaður
fyrir kókaln- og maríjúana dreifi-
keðju. Hann var fljótur að læra. Þegar
vinnuveitendur hans voru gripnir,
tók hann við viðskiptasamböndum
þeirra, flutti til Tijuana, og segja má
að hann hafi á einni nóttu orðið
voldugastur mexíkanskra fíkni-
efnasala.
Á fundinum þennan dag höfðu
Sicilia og undirmenn hans yfírfarið
starfið síðustu mánuði. \ maílok
myndu þeir hafa dreift til heildsala
um öll Bandaríkin — eða komið fyrir
1 vörugeymslum í Kaliforníu — 57
tonnum af maríjúana. Það þýddu um
sjö milljónir dollara í hreinan
hagnað, fyrir utan hagnaðinn af
kókaíni og herólni.
Á umliðnum árum hafði Sicilia
fjárfest í fasteignum: Keypt villur 1
Acapilco, Guadalajara og
Mexíkóborg, og í La Jolla 1
Kaliforníu. Öryggisklefinn hans í
höllinni í Tijuana geymdi sjaldan
minna en fimm hundr-
uð þúsund dollara í reiðufé. Hann
átti reikninga (flesta undir fölskum
nöfnum) í að minnsta kosti sjö
mexíkönskum bönkum, og einn 1
Barclays bankanum f Nassau í
Bahama. En það var ekki allt fengið
með því að fela peningana, mest var
um vert að nýta þá þannig að þeir
gæfu sem mestan arð.
Nú ákvað Sicilia að fara að dæmi
forsprakka skipulagðra glæpa í
Bandaríkjunum og opna keðju af
svissneskum bankareikningum. I
Sviss banna lög að bankarnir gefi upp
hverjir eiga þar innstæður. Auk
leyndarinnar bjóða svissneskir bankar
upp á bestu fjárfestingarþjónustu
heimsins.
í lok maí höfðu 19 tankbílar —
sem í orði kveðnu voru að snúa heim
til Bandaríkjanna að ná í nýtt hlass af
asfalti — flutt 57 tonn af maríjúana
til Kaliforníu. I síðasta bílnum voru
þrjú tonn, pressuð saman í kubba,
sem faldir voru bak við spaðana aftast
og fremst í tanknum. Þessi bí 11 fór
yfir landamærin við San Ysidro
klukkan þrjú að degi þann 31. maí,
og um kvöldið nam hann staðar við
lítið býli ytan við Corona. í dögun
hafði maríjúanakubbunum verið
komið fyrir í bárujárnsskemmu, sem
dreifingarhringurinn notaði fyrir
vöruskemmu. Þrír viðskiptavinir biðu
eftir þessum varningi, og höfðu
borgað fyrir hann í reiðufé, 120
þúsund dollara tonnið, fyrirfram.
Að kvöldi 10. júní var
peningunum, — 20, 50 og 100
dollara seðlum, komið til lítillar
íbúðarí San Diego. Um nóttinaunnu
tvær konur að því að stokka seðlana í