Úrval - 01.03.1979, Síða 89
SVISSNESKA SAMBANDIÐ
87
sem hvergi komu fram á skýrslum,
seðlar sem ekki var hægt að rekja.
28. júní flaug Sicilia til Sviss. Hann
hafði kosið að skipta við hinn virta
Schweizerischer .Bankverein ■—
Svissneska bankasambandið — eina
af hinum þremur víðfrægu, þekktu
fjármálastofnunum í Sviss, banka,
sem hefur notið mikillar virðingar í
heiminum í meira en öld. Svo sem í
öllum svissneskum fjármála-
stofnunum eru það aðeins þeir fáu,
háttsettu bankamenn, sem þurfa að
eiga bein viðskipti við
innleggjandann, sem vita hver hann
er.
Sicilia kynnti sig sem „verslunar-
mann”, sem stæði að víðfeðmu
fasteignafyrirtæki og byggi í Miami.
Hann lagði fram kúbanskt vegabréf,
sem í stóð að það væri gefið út í
Havana í september 1972.
Bankamaðurinn gat engann veginn
vitað að það væri falsað — eitt af sjö
vegabréfum, sem Sicilia hafði aflað
sér undir jafn mörgum nöfnum til að
notaí ýmsum ólöglegum tilgangi.
Sicilia gerði þá kröfu til ávöxtun
fjárins, fyrir utan algera leynd um
hver hann væri, að fjárfestingu þess
yrði þannig hagað að hann gæti
breytt því aftur í reiðufé fyrir-
varalaust. Bankamaðurinn stakk upp
á því, að hann keypti „innileggs-
skírteini”, sem gáfu 9% arð og
„Eurobonds” ýmissa fyrirtækja, sem
ganga kaupum og sölum á verðbréfa-
mörkuðum svo sem í Zúrich,
Frankfurt og Amsterdam, og hægt er
að selja hvenær sem er. Þessi viðskipti
myndu fara fram í nafni
Schwezerischer Bankverein, sem
annaðasti þannig ávöxtun fjár eins
viðskiptavinar síns.
Sicilia ljómaði. ,,Þið skuluð búast
við fyrsta innlegginu 3. júlí,” sagði
hann. ,,Þið munuð fá 800 þúsund
dollara frá Barclays Bank í Nassau.
Um tíu dögum seinna munuð þið fá
1,5 milljón dollara bankaávísun frá
banka mínum í Mexíkó.”
30. júní flaug Sicilia aftur heim til
Mexíkó. Eftir þetta var hann í
stöðugu sambandi við svissneska
bankamanninn. Á tveimur árum
flutti hann 60 milljónir dollara milli
Bandaríkjanna, Mexíkó og Sviss.
Samtímis opnaði hann fleiri
reikninga, þar á meðal „björgunar-
reikning” (til að grípa til ef í
nauðirnar ræki) á Spáni, Frakklandi
og í Panama, og hagaði málum
sínum þannig, að hann gæti flutt allt
á þessa þrjá reikninga, ef hann teldi
sig vera 1 yfirvofandi hættu.
Svo mikil voru umsvif Sicilia í
Bandaríkjunum, að hann gat ekki til
lengdar komist hjá athygli þaðan.
Raunar hafði samstarfshópur, sem
gekk undir nafninu CENTAC 12 —
með aðsetur í San Diego — um hríð
unnið sleitulaust að því að safna
sönnunum á hendur honum. Nú
höfðu þeir nóg undir höndum til að
tengja Sicilia og helstu samstarfs-
menn hans ekki aðeins við tankbíla-
flutningana á maríjúana, heldur
einnig við margar stórar kókaín-