Úrval - 01.03.1979, Side 97
AÐ SKIPTA UM NAFN - ÞAÐ ER ALGENGT!
95
George Philpott, sem árið 1888 sótti
um að fá að breyta eftirnafni sínu.
Hann sagðist bera „erfitt og hlátur-
vekjandi nafn . . sem vekur með
háðskum almenningi marga og
gremjulega skírskotun til áhaida
meira eða minna tengdum
húshaldi.” (Hér er sennilega átt við
llkingu nafnsins við „pisspot” —
sem þýðir næturgagn. Þýð.) George
fékk vilja sínum framgengt.
Kvikmyndanöfn: Rétta nafnið er
hluti af velgengni í kvikmynda-
bransanum. Hefði Marilyn Monroe
komist til frægðar sem Norma Jean
Baker? I flóknum hugum kvik-
myndaframleiðendanna í Hollywood
þarfnaðist hún þessarar upplyftingar,
og slóst þess vegna 1 hóp
,,höfuðstafa”-drottninganna, eins og
þær eru kallaðar.
Sögulegar ástœður: Stundum
gripur rás sögunnar inn í. I heims-
styrjöldinni síðari óskuðu margir
Hitlerar eftir nafnabreytingum. En
ekki Paul Hitler, yfirliðþjálfi, sem
sagði efnislega um málið: ,,Eg held
að hinn delinn geti skipt um sitt. ’ ’
Hvað gerist, ef einhver vill breyta
óþekktu og erfiðu nafni sínu og taka
upp nafn, sem orðið er þekkt vegna
auðs og valda? Þetta gerði Harry H.
Kabotchnik árið 1923, þegar hann
sótti um að fá nafni sínu breytt 1
Cabot. Cabotfólkið fræga og flugríka
í Nýja Englandi höfðaði mál til að
hindra að þetta næði fram að ganga.
Þau töpuðu því, og niðurstaða
dómarans var sú, að hvergi væri staf-
krókur um það 1 lögum, að ekki
mætti taka upp nöfn, þótt þekkt
væru. Kabotshnik var einfaldlega að
klípa aftan af nafninu sínu. Cabots-
fólkið skyldi bara vera hreykið af að
þeirra nafn skyldi verða fyrir valinu.
Á sama hátt breytti innflytjandinn
Abraham Bitle nafni sínu 1 Biddle —
og ég mlnu 1 Morgan. Það kostaði 25
dollara að verða ríkisborgari og nafna-
skiptin voru í kaupbæti. Þetta voru
kjarakaup aldarinnar. Ég öðlaðist nýtt
nafn og nýja sjálfsvitund.
I Shenandoah Valley 1 Virginia er
bautasteinn með þessari grafskrift:
,,Hér hvíla leifar John Lewis, sem
drap írska lávarðinn, settist að í
Augustasýslu í borginni Staunton og
lagði amerísku byltingarorrustunni til
fimm syni.” Ekki get ég státað af
sambærilegum afrekum, en ég gæti
vel hugsað mér, að á grjóti þvl sem
yfir mig yrði lagt stæðu þessi orð:
,,Hér hvíla leifar Teds Morgan, sem
varð ameríkani.” ★
,,Ég hef fundið upp tölvu sem er næstum þvr eins og manneskja”
gortaði uppfinningamaður nokkur við starfsbróður sinn.
,,Áttu við að hún geti hugsað?” spurði hann.
,,Nei. En þegar hún gerir skyssu getur hún kennt einhverri annarri
tölvu um það.”