Úrval - 01.06.1979, Side 18
16
ÚRVAL
mátulegum fyrir hálfa lengju af
grönnum mótuðum grafítstöngum,-
Síðan lagði Monroe stengurnar í
raufirnar og límdi aðra eins fjöl á
móti — og þar var kominn fyrsti
nútíma-blýanturinn! Hann var ódýr,
hentugur, auðvelt að bera hann með
sér, og herskarar skrifstofuþræla,
listamanna og framkvæmdamanna,
sem iðnbyltingin fjölgaði í sífellu,
tóku gripinn fegins hendi. Gæsa-
fjaðrir og blekbyttur urðu annars
fíokks.
Venjulegur 18,5 sentimetra
blýantur, eins og þeir gariga og gerast
nú til dags, getur dregið 56 km langa
línu, skrifað minnsta kosti 45 þúsund
meðallöng orð og þolað 17 yddingar
niður í fimm sentimetra bút. Venju-
lega er nú festur látúnslitur hólkur
við annan endann á honum með
dálitlum strokleðurshnúð í. Gult er
langvinsælasti liturinn á trénu utan
um blýið. Framleiðendur hafa reynt
aðra liti — grænt, svart, blátt, en þeir
litir seljast aldrei eins vel og sá guli.
Einn blýantasmiður gerði könnun
á litunum. Hann lét stóran viðskipta-
vin fá 500 gula blýanta og 50(- græna.
Innan viku tók kvörtunum að rigna
yfir hann vegna grænu blýantanna.
„Blýið” var svo brotgjarnt. Það var
erfitt að ydda þá. Þeir klóruðu. Eða
þeir smituðu. En blýantarnir voru
allir eins, úr sömu framleiðslu.
Nútímablýantur er gerður úr 40
mismunandi efnum. Besta grafítið er
frá Sri Lanka, Madagascar og Mexíkó,
besti leirinn frá Þýskalandi.
Gúmmíið í strokleðrið er frá Malasíu,
vax frá Brasilíu. Steinvöiur á stærð við
egg, sem notaðar em í hrærivélarnar
sem hnoða saman grafítið og leirinn,
em frá Belgíu og Danmörku.
Næstum allur viður, sem notaður
er 1 blýanta, er úr 200 ára ilmsedrus,
sem vex aðallega í High Sierra. Æð-
arnarí honum liggja mjög beint, við-
urinn er mjög jafn og tiltölulega
mjúkur sem kemur sér ekki aðeins vel
þegar saga þarf nákvæmlega, heidur
líka þegar þarf að þrykkja í hann letur
og lita hann, að ógleymdu því hve
það er mikill kostur þegar þarf að
ydda. Or háefninu em gerðir kubbar,
tæpir 8 sentimetrar á kant, og
þurrkaðir. Þegar viðurinn er hæfilega
þurr, er hann skorinn í fimm milli-
metra þykkar fjalir — hálfa blýants-
þykkt — 70 millimetra breiðar og 185
fágaðar og vaxbornar, en síðan seldar
blýantaframleiðendum út um allar
jarðir, sem grópa í þá förin, leggja
,,blýið” í, líma fjalirnar saman, rista,
mála og þrykkja.
Á þennan hátt em gerðar yfir 300
mismunandi blýantategundir, þar á
meðal þær sem skurðlæknar nota til
að draga línur sínar á fyrirhugaðan
skurðstað á sjúklingum. Eða eins og
einhver sagði: „Allt byrjar með
blýanti, hvort sem það er snið á tísku-
fötum, ormstuskip, boltahanski eða
kjarnorkukenning. ” Já, það er
óhætt að segja, að venjulegur
blýantur er vanmetnasta menningar-
tæki mannsögunnar. Næst manns-
heilanum. ★