Úrval - 01.06.1979, Side 56
ÚRVAL
54
hallar munu opnast og lokast eftir
veðri: Þakið mun opnast í góðu veðri
en lokast í rigningu.
Líklegt er, að slíkar hreyfium-
myndanir muni vinna sér sess í
byggingarlist í framtíðinni. Hugsum
okkur borg þar sem þök húsanna
munu opnast og lokast, þakgluggar
munu lyftast og hníga (raunar eru
sjálfvirkir þakgluggar þegar I notkun
í sumum opinberum byggingum,
verksmiðjum og rannsóknarstofum),
veggirnir leggjast í fellingar og rétta
úr sér aftur . . . Raunveruleg lifandi
byggingarlist.
Þegar á sjöunda áratugnum settu
vísindamenn fram undirstöðuatriði
þeirrar hugmyndar, sem síðar varð
kunn undir nafninu ,,architectural
bionics”.
Jurí Lebedev, höfundur bókarinnar
Architectur and Bionics, sem er vel
þekkt meðal vlsindamanna, segir:
„Architectural bionics” felst í því að
taka skapandi afstöðu til hagnýtingar
lögmála hinnar lifandi náttúru, til
skipulags mannlegra bústaða. Að
okkar áliti ættu rannsóknir á þessu
sviði að byggjast á aðferð, er
sameinaði tæknilega hagkvæmni og
hugtök eins og mannleika og fegurð,
aðferð, er ætti að tryggja manninum
sem hagkvæmastar ytri aðstæður og
samræmdasta tengingu borgar-
umhverfis og náttúrunnar. ’ ’
, Það var Rannsóknarstofnun fræði-
legrar og sögulegrar byggingarlistar I
Moskvu, sem kom á fót fyrstu sovésku
tilraunarannsóknarstofunni til þess að
vinna að málum er varða
„architectural bionics”. Síðar varð
þessi rannsóknarstofa samræmingar-
miðstöð fræðilegrar og hagnýtrar
þróunar, sem sérfræðingar frá Lenin-
grad, Kiev, Karkov, Jerevan og Kazan
hafa unnið að í sameiningu.
Fyrsta byggingin, sem reist var í
samræmi við þessa stefnu var
Ostankino sjónvarpsturninn í
Moskvu, en við gerð hans lagði
hönnuðurinn N. Nikitin til grund-
vallar byggingarlögmál plöntu-
stilksins og trjástofnsins. Síðar var
sirkusbygging með belglaga hvelf-
ingu reist í borginni Kazan við
Volgu.
„Architectural bionics” hefur haft
áhrif á höfunda himnuþaksins, er
líkist helst leðurblökuvængjum, sem
sett verður á stóra fimleikahöll með
nálega 200 metra súlulaust haf, sem
verið er að reisa í Leningrad, svo og á
olympíubyggingar eins og íþrótta-
höllina við Mirabeiðgötu og hjól-
reiðahöliina við Krjlatskoje í Moskvu,
og fleira.
Sú hugmynd, sem býr að baki um-
mynduninni, getur einnig fundið sér
annað tjáningarform. Starfsmenn
Architectural bionics rannsóknar-
stofunnar í Moskvu hafa til dæmis
hannað ýmsar gerðir af húsum, sem
hægt er að leggja saman. Þau eru létt,
sterk, veita gott skjól fyrir regni og
Módel af framtíðarhúsi, þar sem
blómið er tekið til fyrirmyndar.