Úrval - 01.06.1979, Page 71
69
ctír' t\eimi lækga vísiijdaniia
75% ÁRANGUR AF NÝRRI
LÆKNINGU Á LEGKRABBA
Japanskir vísindamenn hafa þróað
áhrifamikið lyf, sem þeir segja að geti
læknað legkrabba án þess að koma í
veg fyrir að konan geti orðið barns-
hafandi aftur. Þetta á þó aðeins við ef
krabbameinið finnst tiltölulega
snemma.
Það er YoshioSumiyoshi.læknir við
læknaháskóia Yokohama, sem hefur
ásami félögum sínum fundið upp og
þróað þetta nýja lyf. Venjulega er
brugðist við krabbameini í legi á
þann hátt að fjarlægja móðurlífið,
eða með geislalækningum, sem eyði-
leggja vefina. „Þetta hefur að sjálf-
sögðu þýtt, að viðkomandi konur
hafa aldrei framar getað orðið barns-
hafandi,” segir Sumiyoshi. ,,En nú,
eftir fimm ára rannsóknir og
tilraunir, vonumst við til að geta náð
fullri lækningu á sjúkdómnum, án
þess að eyðileggja möguleika
konunnar til að verða þunguð á ný. í
tilraunum okkar hafa 35 af 47 konum
læknast fullkomlega, og illkynjaðar
frumur horfið gersamiega eftir um
þriggja vikna meðferð.
í fyrstu var lyfjameðferð þessi
notuð eftir uppskurði til öryggis, en
reyndist svo vel, að farið var að sleppa
uppskurðinum og þreifa sig áfram
með lyfjameðferðina eina, sem gaf
þessa góðu raun. Aðferðin er fólgin í
því, að hylki, sem gefur frá sér
stögðugan og jafnan skammt af
lyfinu, er komið fyrir I líkama
siúklingsins. ,,Eitt þeirra efna, sem í
hylkinu eru, er Bleomycin, æxlis-
aiepandi efni, sem notað er sern lyt
gegn mörgum tegundum krabba-
meins,” segirHiroshi Masuda læknir,
einn þeirra sem að rannsókninni
stóðu. ,,Um 99% af lyfinu leysist út í
líkamann á þremur sólarhringum, og
þá er nýju hylki komið fyrir, allt að
sex sinnum. Aðgerðin er sársaukalaus
að heita má, en það besta við hana er
þó að öil merki um krabbamein
hverfa I þremur tilvikum af hverjum
fjórum, og konurnar geta orðið
barnshafandi eftir sem áður.
Aðrir þrír spítalar í Japan eru einnig
sagðir vinna að lyfjalækningum á leg-
krabba á byrjunarstigi. ,,Ef árang-
urinn heldur áfram að vera svona
góður, verður þess ekki langt að bíða
að aðferðin verði almennt tekin upp,
bæði hérlendis og erlendis,” sagði
Sumiyoshi. ,,Þá verður hægt að
leggja geislalækningarnar og skurð-
hnífana á hilluna hvað þetta snertir.”
Úr National Enquirer
HANDABANDIÐ ÓSIÐUR?
Það er hættulegt að heilsast með
handabandi. Tilraunir í Virginíu-