Úrval - 01.06.1979, Blaðsíða 94

Úrval - 01.06.1979, Blaðsíða 94
92 ÚRVAL auður fekk keypt var reynt. Björgum úr graniti var komið fyrir í inngöngu- leiðunum, björgum sem vógu mörg tonn. Búin voru til villugöng. Leyni- dyr voru gerðar. Allt var það árangurslaust. í hinni endalausu bar- áttu milli þeirra sem reyndu að fela auðævi sín um eilífð og þeirra, sem reyndu að afla þeirra sjálfum sér til handa urðu þeir ævinlega undir, sem reyndu að felast. Við upphaf valdatíma 18. konugsættarinnar, um 1580 fyrir Krist, var varla það konungsgrafhýsi til í Egyptalandi sem ekki hafði verið rænt. Þá braut Túmóses fyrsti, einn af mestu faraóum Egyptalands, hefðina á eftirminnilegan hátt og ákvað að láta gera sér neðanjarðargrafhýsi, algerlega falið. Hann valdi dalinn undir stóru klettunum sem blöstu við handan við Níl frá höfuðborg hans, Þebu. Allir eftirmenn hans meðal konuga 18. ættarinnar fóru að dæmi hans, og á fimm alda bili var aðeins vitað um fá grafarrán. En á dögum 19. og 20. konungsættanna (á að giska frá 1320 til 1200 fyrir Krist) urðu grafarránin að plágu. Enginn hinna miklu faraóa slapp við heimsókn grafarræningja. Carter hafði tekið ástfóstri við ein- manaleikann og auðnina í Konunga- dalnum, sögu hans og það sem hann kallaði „trúartilfinninguna sem geislar af þessum stað í svo ríkum mæli, að það er næstum eins og hún sé eigin lífi gædd.” Hann reið þangað oft einn síns liðs á asna og naut hátíleikans af endalausum „harðúðgum klettum” allt umhverfis hann. Allt var dautt og kyrrt. Það var stundum næstum skelfilegt að ferðast um krókótta slóðalausa leiðina um eyðimerkur- sandinn upp að gröfunum sjálfum, sem til forna voru kallaðar ,,Hin Miklu Sæti Eilífrar Þagnar’ ’. Á dvöl sinni á þessum slóðum hafði Carter kynnt sér vandlega sér- hvern fornleifafund, hve ómerkilegur sem hann virtist, og vissi um grafhýsi sérhvers konungs og annarra múmía. Hann sannfærðist um það snemma á ferli sínum að dalurinn hefði ekki ljóstrað upp öllum leyndarmálum sínum, þótt hver vísindamaðurinn og ævintýramaðurinn eftir annan þættist þess fullviss, að hann hefði kannað svæðið til fullnustu. 1875 átti athyglisverðasti fundur- inn sér stað, í Deir-el-Bahri.i jölskylda atvinnu-grafarræningja að nafni Abd-el-Rasul fann helli höggvinn í klett, með mumlum hvorki meira né minna en 40 konunga af 18., 19-, 20. og 21. konungsættinni. Þessum múmíum hafði verið safnað saman og komið fyrir í sameiginlegum kletta- klefa til þess að reyna að vilia um fyrir þjófum. Foringi Abd-el-Rasul ættarinnar sá þarna meiri gersemar en nokkurn hafði órað fyrir, og lét alla sína menn sverja þagnareiða. En græðgin náði yfirhöndinni yfir honum sjálfum, og ekki leið á löngu áður en fágætlega dýrmætar konungsgersemar tóku að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.