Úrval - 01.06.1979, Page 98

Úrval - 01.06.1979, Page 98
96 ÚRVAL stundum. Hann var síþreyttur á sál og líkama og leið stöðugar kvalir. Tímabil hans sem verndara og kostnaðarmanns egypskrar fornleifa- leitar var að renna á enda. Ekki var það honum til uppörfunar að nú höfðu orðið breytingar hjá Fornleifadeildinni. Þegar hér er komið sögu er óhjákvæmilegt að kynna nýjan mann, sem átti eftir að hafa mikil áhrif á starfið sem viðkemur Tútankammon. Þetta var Pierre Lacau, sem árið 1917 tók við yfirstjórn deildarinnar af Sir Gaston Maspero. Lacau var glæsimenni og sérlega hæfur fornfræðingur, stoltur af skipulagshæfileikum sínum og stjórnun. Hann gat rætt af þekkingu og orðgnótt um fjölmörg efni, en var samt svo nákvæmur, að um hann var sagt að hann ,,gerði lista yfir lista. ” Maspero hafði persónulega valið hann sem eftirmann sinn. En þar sem Maspero hafði verið staðfastur í þeirri sannfæringu sinni að erlendir könnuðir skyldu brýndir til að leggja sig fram með fyrirheiti um að minnsta kosti helming af því, sem fyndist, krafðist Lacau þess að stjórn Fornleifadeildarinnar skyldi hafa rétt til að velja hvern þann hlut, er hún kysi í hlut egypta, jafnvel allt, sem fyndist. Howard Carter, sem var fylgismaður sveigjanleika hvað snerti eignarrétt könnuðanna, fyrirleit Lacau. Svo gerðist það árið 1921, að tíma- mótauppgötvun var gerð í geymslu- sölum Metropolitansafnsins í New York. Herbert Winlock, sem síðar varð framkvæmdastjóri safnsins, hafði fengið til handa safninu nokkuð af þeim fáfengilegu hlutum, sem Theodore Davis hafði grafíð upp. Nú komst hann loks til að rannsaka þá. Þá sá hann nokkuð, sem enginn hafði veitt athygli áður. Hann gat sannað, að sumt af því, sem þarna var að finna, var frá athöfn þeirri sem fylgdi smurningu líks Tútank- ammons. Annað voru áhöld, sem notuð voru í síðustu veislunni, sem haldin var samkvæmt siðvenju í grafhýsinu sjálfu áður en því var lokað tii fullnustu — og þetta sannaði svo ekki varð um villst, að Tútankammon var grafinn í dalnum. Winlock kom fréttunum þegar í stað til Carters, sem óx ásmegin. Og Carnarvon lávarður féllst á að kosta leitina eitt tímabil enn. Grafhýsi gullna fuglsins Carter kom til Konungadalsins 28. október 1922 til að hefja „síðasta” tímabilið. Nokkrir dagar fóru til að koma búnaði á staðinn, fara yfír verkáæltunina með verkstjórunum þremur, og ráða verkamenn. Ekki var allur búnaðurinn stranglega forn- fræðilegur: Þar var ógrynni af niður- soðnu kjöti, kassar af sérstöku kexi og mikið af fínustu vínum, sem Carnar- von hafði valið af kostgæfni hjá Fortnum & Mason, heimsfrægum viðskipaaðilum yfírstéttanna. Ökunnur hefði getað haldið að hann
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.