Úrval - 01.06.1979, Page 100

Úrval - 01.06.1979, Page 100
98 væri kominn í Nílar-útibú Fortnum & Mason, svo margir voru þessir kassar, gyrtir stálgjörðum, hver um sig vandlega auðkenndur innihaldinu. Carter hafði líka haft með sér kanarífugl til að lífga upp á einmana- legt piparsveinslífið. Kanarífuglinn varð þegar í stað eftirlæti verka- mannanna og verkstjóranna. Þeir nefndu hann ,,gullna fuglinn” og töldu hann heillamerki. 1. nóvember hófst Carter aftur handa þar sem hann hafði horfið frá fimm árum áður og hætt við: hjá rústum verkamannabúðanna. Að kvöldi þriðja nóvember sá hann að enn var nærri meters jarðvegur undir búðunum niður á fast. Þar skyldi tekið til hendinni næsta dag. Þegar Carter kom á staðinn næsta morgun, kom honum á óvart hve hljótt var meðal verkamannanna, sem venjuiega kviðruðu daginn út. Fyrst hélt hann að slys hefði orðið. En einn verkstjóranna sagði honum, að fundist hefðu þrep ofan í klettinn. Þegar dálitið meira hafði verið mokað, sá Carter að þetta var inngangur að þrepum, sem höggvin voru í klettinn og þekkti þegar I stað, að frágangur var með þeim hætti sem tíðkaðist er höggvin voru þrep niður í konunglegt grafhýsi. Unnið var af óvenjulegum hraða þennan dag og næsta. Gerð þrepanna var með þeim hætti að hún benti til grafhýsis faraós af 18. konungs- ættinni, tímabili Tútankammons. Allir voru spenntir til hins ítrasta. ÚRVAL Sumir verkamannanna fóru að tala um „grafhýsi gullna fuglsins,” og þökkuð kanarífugli Carters heppnina. Þrepin voru öll höggvin 1 klettinn og lágu með 45 gráðu halla inn undir hæð. Þegar þrepunum fjölgaði, gengu þau inn undir brúnina að vestanverðu og urðu að göngum. I línu við 12. þrepið, undir sólsetur þann dag, kom Carter niður á efsta hluta dyra, sem lokað var með stórum steinum, límt á milli og merkt með innsiglum og rúnum. I flýti kannaði hann innsiglin, sem hvert um sig var á stærð við lófa hans, í leit að nafni þess, sem 1 grafhýsinu hvíldi. Það nafn hlaut að vera þarna einhvers staðar; það var ófrávíkjanlcgur og heilagur siður í Konungadalnum. En hann fann ekkert nafn, svo hann dró þá ályktun að þetta væri ekki konungsgröf. Hefði hann aðeins haldið áfram, örlítið dýpra, hefði hann fundið innsigli með sporöskjulöguðu merki Nebkeperúra, veldisnafni Tútank- ammons — og þannig hefði hann, eins og hann sagði síðar sjálfur, sparað sér meira en þriggja vikna áhyggjur. En hann gerði það ekki, af þeirri einföldu ástæðu að það var orðið framorðið og rafmagnsljós voru enn ófáanleg í þessum hluta dalsins. Hann varð að nota það sem eftir var birtu til að moka aftur ofan 1 það sem mokað hafði verið upp úr til að vernda þrepin sem best. Og þarna kom iíka séntilmannleg ákvörðun til:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.