Úrval - 01.06.1979, Qupperneq 101

Úrval - 01.06.1979, Qupperneq 101
GRÖF TÚTANKAMMONS 99 Hann ákvað að halda ckki áfram fyrr en verndari hans kæmi frá Englandi. Það var ekki nema sanngjarnt. Svo nauðugur viljugur fyllti hann í það sem hreinsað hafði verið út. Hann valdi traustustu verkamennina úr og kom upp sólarhrings vakt við göngin. Næsta dag sendi hann Carnarvon skeyti, og réði sér til hjálpar breska fornfræðinginn A. R. ,,Pecky” Callender. Callender gat unnið hvað sem gera þurfti í uppgreftri og var, eins og Winlock sagði, ,,einn þeirra fáu fornfræðinga, sem gat unnið með Carter til lengdar án þess að tapa sér. ” Meðan Carter beið komu Carnarvons, keypti hann búnað til að geta notað rafmagnsljós við komandi rannsóknir. Starfið sjálft gekk liðlega. Þá gerðist nokkuð, sem hafði alvarleg áhrif á verkamennina. „Gullni fuglinn”, heillagripurinn þeirra, fórst með einkennilegum hætti. Winlock lýsti þessu seinna í bréfi til kunningja síns: „Carter hélt til Kaíró til fundar við Carnarvon. Callender bjó einn í húsi Carters og leit eftir fuglinum. Dag einn heyrði hann vængjaslátt og tíst, og þegar hann kom að var kóbraslanga að ljúka við að renna kanarífuglinum niður. Kóbraslöngur vaxa af höfðum gömlu faraóanna, eins og allir innfæddir vita. Niðurstaðan lá í augum uppi. Slanga konungsins hafði hefnt sín á verndargripnum, sem hafði ljóstrað upp leyndarmálinu um gröfina. Framhaldið var jafn augljóst — að minnsta kosti t þeirra augum — að einhver myndi deyja áðuren veturinn væri úti.” ,, Dýrindis hlutir 23. nóvember komu Carnarvon lávarður og hin líflega dóttir hans, Evelyn Herbert, með Carter til Luxor. Eftir hádegisverð fóru þau öll þrjú og skoðuðu göngin að gröfinni, sem Callender hafði verið að hreinsa. Næsta morgun hreinsuðu verka- mennirnir það sem eftir var af þrepunum. Þá fyrst var hægt að sjá allar dyrnar. Á þeim neðanverðum voru innsiglin tiltölulega skír. Á mörgum þeirra mátti lesa nafn Tútankammons. Nú var fagnaðarstund. Þegar allt kom til alls, var dýrasti draumur þeirra allra að rætast. En eftir því sem verkinu hélt fram 25. nóvember kom í ljós, að dyrnar höfðu verið opnaðar og þeim lokað aftur I að minnsta kosti tvö mismunandi skipti. Gröfin var því ekki ósnert. Ræningjar höfðu komist I hana. En þjófnaðurinn gat ekki hafa orðið síðar en hafist var handa um gerð grafhýsis Ramsesar VI eða um tveimur öldum eftir daga Tútankammons. Carter og Carnarvon testu von sína við þá staðreynd, að grafhýsinu hafði tvívegis verið vandlega lokað aftur með innsiglum, því það benti til þess að þjófarnir hefðu ekki hreinsað allt I burtu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.