Úrval - 01.06.1979, Page 104

Úrval - 01.06.1979, Page 104
102 URVAJ Æsileg stund Að fráskyldum dyrunum inn í annexíuna voru aðeins einar aðrar dyr hugsanlegar. Það var múrlímdi og innsiglaði flöturinn milli varðmann- anna tveggja, svörtu og gullnu. Það var Carter áfall að sjá, að þar höfðu þjófar líka orðið fyrri til. Við botninn, nokkurn veginn nákvæmlega fyrir miðju, var hálf- hringur öðru vísi á litinn en afgangur- inn; eins á litinn og múrlímið í fremri dyrunum. Á þessum mislita hluta var klasi af dauðainnsiglum, öruggt merki þess að prestar hefðu lokað gatinu eftir að þjófarnir voru farnir. En gatinu hafði verið lokað 1 flýti; neðst voru stórar sprungur og þar mátti sjáí óreglulega steinhleðslu. Carter var ekki nema fáeinar mínútur að kroppa nokkra þeirra úr. Þegar hann beindi ljósinu sínu inn um opið sá hann aðeins þröngan gang sem endaði með nöktum vegg. Þjófarnir hlutu að hafa hreinsað allt í burtu. Þeir Carter og Callender losuðu fleiri steina þar til þeir höfðu opnað nógu stórt gat til þess að skríða inn um. Carter fór fyrstur. Gólfið í ganginum var eitthvað um meter lægra heldur en í forstofunni, og í nokkrar sekúndur hvarf hann hinum alveg. Þegar hann kom fyrir sig fótunum, beindi hann ljósi slnu um ganginn og uppgötvaði tvöfalda, gagnheila hurð, lokaða með slagbröndum en ekki innsiglaða, skreytta með óviðjafnan- lega fallegri gylltri og blárri gljá- brennslu. Þetta var þá enginn gangur, þegar allt kom til alls. Hann var staddur t sjálfu grafhýsinu. Bæði Carnarvon lávarði og lafði Evelyn tókst að bora sér gegnum gatið á eftir Carter. En Callender stóð eftir. Hann var of þéttur á velli. Carter virðist hafa ákveðið að reyna ekki að stækka opið frekar. Kannski hefur hvarflað að þeim að þau væm að bauka það sem stranglega var bannað samkvæmt leyfissamningi þeirra. En teningunum var varpað — nú varð ekki aftur snúið. Þau þrjú könnuðu dyrnar fagur- skreyttu. Áttu þau að opna þær? Þau höfðu engan rétt til þess. En þau vom, þegar öllu var á botninn hvolft, fornfræðingar — og mannleg. Svartviðarsiagbrandarnir tveir vom dregnir frá. Carter tók varlega í, en þegar ekkert lát var á tvöföldu hurðinni, tók hann þéttar á. Allt í einu lét hurðin undan og dyrnar sveifluðust upp á gátt. I skímunni af ljósum þeirra blasti við híalínshengi, svo fíngert að það var líkt og gert úr loftinu sjálfu. Á þetta híalín vom festar bronsgullnar rósettur, hver um sig á stærð við pening. Um leið og Carter kom við eina þeirra, féll hún í lófa hans eins og hún hefði beðið þess í 3200 ár að vera lesin, og hann stakk Helgríman á múmíu konungsins, fast að því í eðlilegri stærð. Hún huldi andlit múmíunnar og er nákvæm eftirmynd andlitsins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.