Vesturbær - 01.06.1987, Qupperneq 3
til sín og öruggar gönguleiðir og hjóla-
leiðir þurfa að vera fyrir hendi. Stjórn
íbúasamtaka Vesturbæjar hefur leitað
eftir samvinnu við skipulagsaðila borgar-
innarum mál þetta.
Vorhreinsun í húsum og görðum er orð-
in árlegur viðburður. Það hefur hins vegar
löngum verið áhyggjuefni hve fá græn
svæði er að finna í borgarhlutanum okkar.
íbúasamtökin hafa látið frá sér tillögur
þar að lútandi og einnig sýnt hug sinn í
verki t.d. með Vesturbæjarvíðinum sem
gróðursettur var við Hallveigarstaði
sumarið 1982. Tillögur hafa verið uppi um
betri nýtingu garða innan ramma fjölbýl-
ishúsa og er ánægj ulegt að sj á í þeim
skipulagstillögum sem unnar hafa verið
fyrir gamla Vesturbæinn og kynntar voru í
Hlaðvarpanum sl. vetur hve mikla áherslu
höfundar leggj a á að gera úr slíkum görð-
um ánægjuleg útivistarsvæði fyrir íbúana
og einnig að nýta einstakar lóðir til
leiksvæða og íþróttasvæða eftir því sem
við verður komið. Þá má einnig nefna að
rætt hefur verið um að hugsanlega gæti
hafnarsvæðið að hluta til orðið aðgengi-
legra til útivistar og hafa íbúasamtökin
einnig farið fram á umræður við skipu-
lagsaðila um það mál er til kemur.
Árið 1985 var samþykkt að efna til sam-
\30|
keppni þriggja listamanna um gerð verks
til þess að gefa Reykjavíkurborg á 200 ára
afmæli hennar. Safnað var fé meðal Vest-
urbæinga með ýmsum hætti til þess að
standa straum af launakostnaði lista-
mannanna og var niðurstaða dómnefndar
sú að „Skip“ Jóns Gunnars Árnasonar
bæri af. Reykjavíkurborg var afhent
frummynd verksins að gjöf á afmælinu og
hét borgarstjóri því við móttöku að verkið
myndi rísa í fullri stærð í þessu hverfi á
næstu árum. Tillaga liggur fyrir um að það
verði á uppfyllingu vestur af Vesturgötu.
Sumarið 1986 var svo riðið á vaðið með
útiskemmtun á Hólatorgi þar sem margt
var sér til gamans gert. Það varð hvati þess
að halda áfram á svipaðri braut og er
Þrettándagleðin sl. á nýja skólavellinum
eitt dæmið en hátíðin sem fyrirhuguð er á
Stýrimannastíg á Sjómannadaginn annað
til. Vonandi grípa margir tækifærið og
blanda geði við nágranna sína.
{tilefni 10 ára afmælis íbúasamtaka
Vesturbæjar hefur ýmislegt verið gert og
má auk hátíðahaldanna sem þegar hefur
verið getið og kynningar á skipulagstil-
lögum fyrir hverfið, nefna ráðstefnu sem
öll íbúasamtök í borginni stóðu að í maí
1987 og fj allað er nánar um í þessu blaði.
Og síðast en ekki síst er svo blaðið sem hér
lítur dagsins ljós og við efum ekki að allir
fagna.
Á aðalfundi íbúasamtakanna vorið
1986 var samþykkt tillaga um að samtökin
skyldu beita sér fyrir því að gamli Stýri-
mannaskólinn sem nú lýkur senn hlut-
verki sínu sem barnaskóli fái reisn sem
þessu sögufræga húsi sómir og taki við
hlutverki menningar og félagsmiðstöðvar
í hverfinu. Augljóst er að fara verður var-
færnum höndum um þetta hús en vart er
hægt að hugsa sér annað betur er fallið til
þess að vera miðstöð mannlífs íþessu
hverfi, hverfinu sem byggðist fyrir atbeina
þeirra sem sóttu sjó. Tilstyrk margra þarf
til þess að svo megi verða, borgaryfirvöld
og ríkisvald þurfa að leggja málinu lið,
fengur væri að því að sjómannastéttin ætti
einhverja aðild að endurreisn byggingar-
innar og síðast en ekki síst þurfum við,
Vesturbæingar eldri og yngri, að taka
höndum saman. Mikið er í fang færst en
viðfangsefnið er vissulega verðugt átaks.
Anna Kristjánsdóttir
formaður IV
VESTURBÆR • 3