Þroskaþjálfinn - maí 2005, Blaðsíða 13

Þroskaþjálfinn - maí 2005, Blaðsíða 13
Útskriftarhópur órsins 1964. Fró vinstri: Sigríður Eyjólfsdóttir í fyrstu varastjórn, Helga Birna Gunnarsdóttir fyrsti ritari, Árný Kolbeinsdóttir fyrsti gjaldkeri, Sonja Larsen endurskoðandi, Jóna Helgadóttir, Erla Friðleifsdóttir, endurskoðandi og Ester Pétursdóttir. á um það hvort verðandi þroskaþjálfar ættu erindi inn í háskóla sem fyrst og fremst menntaði fólk til að vinna með börnum, eða fylgja eftir þeim fagstéttum sem þroskaþjálfar höfðu starfað hvað lengst með, töldu sig eiga meiri samleið með og sem nutu menntunnar frá Há- skóla Islands. Víðtækur skilningur var meðal stéttarinnar um að Háskóli íslands hefði meiri burði til að mennta stétt með svo viðamikið starfsvið sem þroskaþjálfun er. Það sjónarmið varð þó ofan á að standa ekki í veginum fyrir því að skólinn yrði fluttur í Kennaraháskólann. lokaqrð helga birna um leið og þér er ÞAKKAÐ FYRIR AÐ TJÁ HUG ÞINN UM UPPHAF STARFSSTÉTTARINNAR, GEFST ÞÉR TÆKIFÆRI TIL AÐ SENDA FÉLÖGUM ÞÍNUM HUGLEIÐINGAR UM STÖÐUNA NÚ OG FRAMTÍÐAR- SÝN ÞÍNA í MÁLAFLOKKNUM. Eins og ég sagði áðan voru aðstæður við stofnun Félags gæslusystra sérstakar. Við stóðum á tímamótum, á aðra hlið hagræðingarsjónarmið einangrunarstefn- unnar með ómannúðlegum lausnum fyrir það fólk sem ekki rúmaðist innan gildis- mats þess tíma og í skjóli þess að það gat ekki varið sig sjálft. Hinsvegar örlaði á þýðum viðhorfum úr fjarlægð sem boð- uðu ný manngildissjónarmið, - það gerði gæfumuninn. En þó að það hafi orðið stórstígar breytingar í málefnum þess fólks sem skil- greint er fatiað í okltar samfélagi síðan við gæslusysturnar stofnuðum félagið okkar, þá tel ég margt óunnið áður en hægt er að segja með réttu að því hafi verið tryggt það sem þorri þjóðarinnar telur í dag vera eðlileg lífsgæði. Til þess þarf að mínu mati mikil og róttæk viðhorfsbreyting að eiga sér stað hjá okkur sem að málefnum þessa hóps koma . Það er ekki nóg að skilgreina hvað stjórnvöld telja gæði í þjónustu eða mæla árangurinn með reglustikum stjórn- unarkenninga. Fatlaðir fá ekki notið fullra mannréttinda og þeirra lífsgæða sem al- menningur nýtur fyrr en frelsi þeirra verð- ur tryggt með sama hætti og annarra þegna þessa samfélags. Lífsgæði okkar byggjast fyrst og fremst á frelsi, frelsinu til að velja hvernig við högum lífi okkar. Því miður held ég að það sé alveg sama hvað við reynum að vanda okkur mikið við að áætla hvað einn samfélagshópur vill eða þarfnast, það verður alltaf dæmt til að mis- takast. Það er hugsunarháttur sem hefur verið brotinn á bak aftur í samfélagi ófatl- aðra á vesturlöndum en einhverra hluta vegna eru berlínamúrarnir enn við lýði í heimi þeirra sem þurfa á auknum samfé- lagsstuðningi að halda. Framundan eru þó bjartir tímar og menn eru sífellt að átta sig betur og betur á því að það þjónar hvorki sjónarmiðum hagkvæmninnar né hags- munum fatlaðra að beita aðferðum áætl- unarbúskaparins á þennan þjóðfélagshóp öðrum fremur. Vonandi líður ekki á löngu þar til að sú hugsun verður aðeins til sem fortíð á prenti, líkt og svo margt sem nú heyrir sögunni til og við lesum um í við- tölum eins og þessu. Ég óska okkur öllum til hamingju með afmælið. TAKK FYRIR HELGA BIRNA. Að loknu viðtalinu gat ég ekki annað en hugsað um þann gífurlega mun sem er á aðbúnaði fólks með fötlun nú og þá. Meðan ég klæddi mig í úlpuna flaug hug- urinn suður í Kópavog þar sem ég sjálf steig mín fyrstu skref í starfi með fötluð- um á deild 4 á Kópavogshæli, þá 14 ára gömul í sumarvinnu. Það er ekki hægt að ímynda sér muninn á aðbúnaðinum, ég steig út í vorloftið og gladdist yfir þeim mun! Viðtalið tók Hulda Harðardóttir, þroskaþjálfi.

x

Þroskaþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.