Þroskaþjálfinn - mai 2005, Síða 18
Starfsánægja
þroskaþjálfa
Kynning
Árið 1992 útskrifaðist ég frá Þroska-
þjálfaskóla Islands og hef unnið sem
þroskaþjálfi síðan. Vorið 2004 útskrifaðist
ég frá Kennaraháskóla Islands með 15 ein-
inga viðbótarnám og BA gráðu. Haustið
2004 hóf ég síðan 60 eininga meistaranám
í fötlunarfræði við Háskóla Islands.
I tengslum við meistaranám mitt í HI
leitaði ég til stjórnar Þroskaþjálfafélags Is-
lands (Þl) vegna verkefnavinnu. Verkefn-
ið var að gera spurningakönnun. Erindi
mínu var vel tekið og fékk ég aðgang að
nöfnum þroskaþjálfa sem að voru tekin af
handahófi úr félagatali Þroskaþjálfafélags-
ins. Spurningalistinn var sendur út til 200
þroskaþjálfa í október 2004. Það er
skemmst frá því að segja að fyrstu við-
brögð voru ekki góð en eftir uppgefinn
frest höfðu aðeins 36 spurningalistar
borist mér. En eftir umræðu á heimasíðu
ÞI tóku þroskaþjálfar við sér og í fram-
haldi af því bárust 112 listar á skömmum
tíma. Svörunin varð því að lokum 53%.
Spurningakönnunin fól í sér að afla
upplýsinga um m.a. kyn, aldur, starfsaldur
og vinnustað. Einnig var leitað upplýsinga
um atriði eins og starfsaðstöðu, álag í
starfi, laun og viðurkenningu í starfi. Auk
þess var spurt um undirbúningstíma;
hversu mikill hann væri, hvort hann væri
nægur, ef ekki, þá hvað væri nægjanlegur
undirbúningstími.
Helstu niðurstöður
— Starfsvettvangur
Þegar spurt var hvar þroskaþjálfar
störfuðu kom í ljós að flestir þeirra störf-
uðu í skólum, þ.e. í leik- grunn- eða fram-
haldsskóla eins og fram kemur á mynd 1.
Þessi niðurstaða endurspeglar niður-
stöður símakönnunar sem Fagráð Þl stóð
Starfsvettvcmgur
þroskaþjálfa
40 ---------------------
35 ---------------------
30 ------- -------------
25 ------- -------------
Búseta Skólar Dag- Annoð
þjólfun
fyrir í janúar 2005 meðal nýútskrifaðra
þroskaþjálfa.
Undirbúningstímar, símenntun,
virðing
Af þátttakendum svöruðu 25% að
undirbúningstímar ættu ekki við í þeirra
starfi. Ástæður þess voru m.a. að þátttak-
andinn starfar sem ráðgjafi og/eða stjórn-
andi. Um 42% þátttakenda sem höfðu
undirbúningatíma töldu hann nægan.
Þeir sem svöruðu að þeir hefðu ekki næg-
an undirbúningstíma voru um 33% og
töldu að 9 klst. væri nægur undirbúnings-
tími.
Þátttakendur voru spurðir um sí-
menntun og þróun í starfi. Niðurstöðurn-
ar gefa til kynna að flestir þátttakendur
sýna frumkvæði við að afla sér endur-
menntunar og leita sér nýrra leiða til að
þróast í starfi. Tæplega 70% af þátttak-
Ingibjörg Gyða Guðrúnardóttir.
endum töldu að þekking þeirra og hæfi-
leikar nýtist þeim vel í starfi.
Langflestir þátttakendur töldu að bor-
in væri virðing fyrir faglegum vinnubrögð-
um þeirra á þeim vinnustöðum sem að
þeir starfa á.
Þegar spurt var um starfsaðstöðu kom
í ljós að langflestir svarenda eða um 55%
hafa góða starfsaðstöðu og góðan aðgang
að tækjum og gögnum til þess að sinna
starfinu vel eins og sýnt er á mynd 2.
Á heildina litið er
Mjög Frekar Hvorki Frekar Mjög
sammöla sammöla né ósammóla ósammúla