Þroskaþjálfinn - maí 2005, Blaðsíða 31
munur á. Ég er nú að vinna á sambýli þar
sem átta einstaklingar búa og eru þeir
flestir í eldri kantinum. Þetta er mjög
spennandi starf enda fer þessi hópur þjón-
ustunotenda vaxandi og oft þarf að finna
ný úrræði og búsetutilboð vegna þess að
mörg sambýli eru ekki í stakk búin til að
mæta þörfum fatlaðra eldri borgara.
Þegar ég byrjaði að vinna í Noregi
voru gróskutímar og peningar ekki mikið
vandamál en á síðastliðnum árum hefur
það snúist við og sparnaður er algengasta
orðið á öllum starfsmannafundum. Þetta
tekur á þar sem það er oftar en ekki fatl-
aðir og börn sem finna mest fyrir sparn-
aði. A síðasta vinnustað mínum var
reyndar hægt að draga úr starfsmanna-
haldi án þess að það kæmi niður á faglegu
starfi. En það er því miður ekki svo alls
staðar og það líður ekki sú vilca án þess að
bæjarblöðin birti greinar um sparnað og
hversu illa hann kemur niður á þjónustu
við fatlaða.
I sveitafélaginu, þar sem ég vann, var
mikil áhersla lögð á sjálfsákvörðunarrétt
fatlaðra og í október síðastliðinn var hald-
m ráðstefna sem bar yfirskriftina „Jeg gjor
det“ (Ég geri það) sem var framhald ráð-
stefnu sem haldin var fyrir tveimur árum
sem bar yfirskriftina „Hvem bestemmer i
ditt liv“ (Hver ákveður í þínu lífi). Á ráð-
stefnunni voru það þjónustunotendur
sem báru hitann og þungann af fyrirlestr-
um og hópastarfi. Þessi ráðstefna var mjög
áhugaverð og vakti mig og aðra þátttak-
endur til umhugsunar um það hvernig við
vinnum starf okkar. Er það okkar starf að
segja íbúum hvernig íbúðin þeirra á að líta
út? Er það okkar starf að segja þeim
hversu mikið þau mega reykja eða dreldta?
Er það okkar starf að segja þeim hversu
lengi þau mega sofa þegar þau eiga frí?
Hérna og á Islandi er forræðishyggjan
ennþá ríkjandi og við teljum okkur oft
vita betur en þjónustunotendur hvernig
þeir eiga að lifa lífi sínu. Ég vona bara að
þessi ráðstefna veki fólk til umhugsunar
og að fatlaðir einstaklingar fái að lifa líf-
inu á sínum forsendum en ekki okkar.
Ólöf Haflína Ingólfsdóttir. Útskrifuð úr
þroskaþjálfaskor Kennaraháskóla Islands
1999 Starfar á sambýlinu Oppsjö, Noregi.
Þroskaþjálfafélag íslands
W ára
18. maí 1965 - 18. maí 2005
Þann 18. maí fagna þroskaþjálfar að liðin
eru 40 ár frá stofnun fyrsta félags
þroskaþjálfa, Félag gæslusystra.
í tilefni þess býður Þroskaþjálfafélag íslands
öllum þroskaþjálfum og öðrum velunnurum
þess til samfagnaðar.
Veislan verður haldin að Holtasmára 1
Kópavogi húsi Hjartaverndar þann 18 maí
frá kl: 17.00-19.00.
Afmælisnefndin