Þroskaþjálfinn - maj 2005, Side 33

Þroskaþjálfinn - maj 2005, Side 33
ir hvort annað í að ná þeim. Árangursríkt fólk lærir í gegnum reynslu, með því að framkvæma, taka áhættur og læra að treysta á færni sem það býr yfir. Það er ekki drifið áfram af hræðslu um að mis- takast heldur af lönguninni til þess að gera vel.(l) Hugmyndafraeði sjálfsákvörðunar Það var Bengt Nirje (1972) sem notaði hugtakið Self-Determination íyrstur manna innan fötlunarfræða, þar sem hann segir það vera grundvallaratriði í normalís- eringu að skapa kringumstæður þar sem fatlaðir einstaldingar upplifi þá virðingu (normal respect) sem hver mannvera eigi rétt á, og í öllum aðgerðum sem snerta viðkomandi þurfi að taka tillit til hans óska, þarfa og væntingaá* 1 2 3 4 5'41 Að mínu mati er stefnan að stuðla að aukinni sjálfsá- kvörðun fatlaðs fólks rökrétt þróun frá normalíseringu og hugmyndum Wolfens- bergers um gildisaukandi félagslegt hlut- verk, þ.e. að styrkja jákvæða ímynd fatlaðs fólks í samfélaginu og draga fram, auka, styrkja og viðhalda færni hvers og eins<6), í átt að samfélagi án aðgreiningar. I bókinni Theory in Self-Determination gera þeir Wehmeyer, Abery, Mithaug og Stancliffe grein fyrir kenningum sínum um sjálfsáltvörðun og er bókin framlag þeirra til þess að skapa hugmyndafræðileg- an grundvöll fyrir áætlunargerð og starf- semi stofnana, skóla o.fl. sem stefna að aukinni sjálfsákvörðun þjónustunotenda þeirra. Mun ég hér á eftir skýra frá hugmynd- um Wehmeyer, þar sem mér fannst kenn- ingar og aðferðir hans mjög aðgengilegar en ég á eftir að kynna mér betur verk sam- starfsmanna hans . Að vera ráðandi í sínu lífi Samkvæmt kenningum Wehmeyers á sjálfsákvörðun við það að einstaklingur er fýrsti orsakavaldur (primary causal ageni) í sínu eigin lífi. Hann velur og tekur ákvarðanir um eigið líf og lífsgæði án of mikillar utanaðkomandi áhrifa eða af- skipta. Orsakavaldur er sá sem orsakar að hlutirnir eru að gerast í hans eigin lífi. Wehmeyer leggur hér áherslu á það að maður þurfi ekki að gera allt sjálfur til þess að vera ráðandi í sínu lífi og að kenning hans útiloki því ekki fólk með mikla þroskahömlun eða mjög skerta líkams- getu. Hann segir það vera algengan mis- skilning að sjálfsálcvörðun þýði að hafa fullkomna stjórn yfir alla valmöguleika og ákvarðanatöku. Maður geti valið að fela stjórnina í hendur annarra sem eru betur hæfir til þess.<3,5) Það er mjög mikilvægt að vera ráðandi í sínu eigin lífi til þess að lífsgæðin aukist. Allir möguleikar til þess að velja og allar ákvarðanir stuðla að lífsgæðum, hvort sem þau eru félagsleg, andleg eða líkamleg. Hér er átt við bæði stórar ákvarðanir, sem koma fyrir einstaka sinnum, og öllum litlu daglegu ákvörðunum, eins og hvað á að borða. Rannsóknir hafa sýnt fram á aug- ljóst samhengi á milli aukinna valmögu- leika, möguleikum til ákvarðanatöku, meiri stjórn á eigin Iífi og auknum lífsgæð- um.<3) Hagnýt kenning um sjálfsákvörðun I starfi sínu hefur Wehmeyer einbeitt sér sérstaklega að því að þróa hagnýtar að- ferðir til að meta sjálfsákvörðunargetu ein- staldinga og aðstoða þá á markvissan hátt í því að öðlast meiri færni í hinum fjöl- mörgu þáttum sjálfsákvörðunar. Grundvallareinkenni sjálfsákvörðunar Wehmeyer Iýsir fjórum grundvallar- einkennum sjálfsákvörðunar (essential charateristics of selfdetermined behavior): 1. Sjálfræði (behavioural autonomy) á við að atferli einstaklings einkennist af sjálfstæði og fari eftir hans áhugamál- um og hæfileikum laus við utanað- komandi afskipti eða áhrif. Wehmeyer leggur áherslu á það að flest fólk sé ekki fullkomlega sjálfstætt, þ.e. gerir allt algjörlega sjálft án utanaðkomandi áhrifa. Hann segir að allir séu undir áhrifum frá öðrum: fjölskyldunni eða ókunnugum, alla daga. Mikilvægt er að hver maður fái að ráða hversu mikil afskipti séu viðeigandi fyrir hann. 2. Sjálfstjórn (selfregulated behavior) gerir fólki kleift að athuga og meta umhverfi sitt og eigin möguleika til þess að takast á við það. Sjálfstjórn er mikilvæg til þess að geta tekið ákvarð- anir um það hvað á að gera og hvernig framkvæmdinni ætti að vera háttað, til þess að meta hvort væntanleg útlcoma sé æskileg og til þess að endurskoða áætlunina ef nauðsynlegt væri. 3. Sálræn sjálfsefling (psychological empowerment) á við það að upplifa stjórn á eftirfarandi sviðum: á per- sónulegu sviði, sviði vitsmuna og hvatningar. Flestir sem sýna sjálfsefl- ingu í athöfnum eru sannfærðir um það að þau stjórni kringumstæðum sem eru þeim mikilvægar, að þau búi yfir nauðsynlegri færni til þess að ná æskilegum árangri, og þegar þeir velja að nýta sér þessa færni muni þeir ná tilætluðum árangri (outcome expecta- tions). 4. Sjálfsþroski (selfrealization) á við að þekkja sjálfan sig á passlega heildstæð- an og nákvæman hátt og þekkja styrk sinn og veikleika. Sjálfþekkingu- og skilning öðlast maður í gegnum reynslu og túlkun á umhverfi sínu.<4) Wehmeyer og samstarfsmenn hafa einnig þróað og sannreynt matsaðferð til að meta sjálfsákvörðun hjá einstaklingum með því að spyrja út í og mæla ofannefnd einkenni. (The Arc's Self-Determination Scale)<1,5). Þættir sjálfsákvörðunar Samkvæmt Wehmeyer þróast grund- vallareinkenni sjálfsákvörðunar með því að fólk nær færni í ellefu þáttum sjálfsá- kvörðunar (component elements of self- determined behavior) sem eru eftirfar- andi: 1. Val (Choice-Making): er færni til þess að velja og vita hvað maður vill frekar og er sú færni mjög nauðsynleg til þess að öðlast sjálfsákvörðun og lífsgæði. 2. Akvarðanataka (Decision-Making)\ er færni til þess gera sér grein fyrir öllum möguleikum og afleiðingum, meta og taka ákvörðun. 3. Lausn verkefna/vandamála (Pro- blem-Solving): er færni til þess að skilja og greina verkefnið/vandamálið, finna lausnir, meta afleiðingar og velja bestu lausnina. 4. Áætlunargerð (Goal Setting and Atta- inment): er færni til þess að setja sér raunhæf markmið og tímaramma, ákveða leiðir að markmiðunum og skilgreina ávinninginn sem felst í því að ná þeim. 5. Sjálfstæði (Independence, Risk-Taking and Safety Skills). færni til þess að taka

x

Þroskaþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.