Þroskaþjálfinn - maj 2005, Side 34

Þroskaþjálfinn - maj 2005, Side 34
Gagnlegir/ áhugaverðir „krækjur" X Hefur þú litið nýlega á „krækjur“ á heimasíðu ÞÍ www.throska.is? X Ertu með ábendingar um góða/áhugaverða „krækjur"? þátt í samfélaginu, til þess að taka áhættu en huga um leið að öryggi. 6. Sjálfsmat (Self-Monitoring, Self- Evaluation and Self-Reinforcement Skills}. færni til að skoða og meta eigin árangur og styrkja sjálfan sig. 7. Sjálfstilsögn (Self-Instruction): færni til þess að leiðbeina sjálfum sér 8. Sjálfsmálsvörn (Self-Advocacy and Leadership Skills): færni til þess að vera sinn eigin málsvari. 9. Innri stjórn (Internal locus ofcontrol): að trúa á að maður hafi áhrif á það sem er að gerast í manns eigin lífi, að horfa á verðlaun sem afleiðingu eigin gjörð- ar og ekki sem geðþóttaákvörðun óviðráðanlegra utanaðkomandi afla. 10. Sjálfstraust (Perceptions of Self-Ejfci- acy and Positive Outcome Expectanciesj. að treysta á eigin færni og vænta þess að árangur náist. 11. Sjálfsmeðvitund og sjálfsþekking (SelfAwareness and Self-Knowledge): að þekkja eigin styrk, veildeika, hæfileika, takmarkanir, óskir og þarfir. Wehmeyer leggur áherslu á að ailir þessir þættir tengist mjög innbyrðis og aukin færni í einum þætti hafi afleiðingar á færnina í hinum.1 2 3 (4) 5 6 Þetta þýðir að hægt er að vinna með einn eða fáa þætti, eftir möguleikum viðkomandi, en um leið styrkist hann í öðrum þáttum. I bókunum Theory in Self-Determ- ination og Teaching Self-Determination to Students with Dissabilities gera Wehmeyer o.fl. hverjum þætti ítarleg skil, bjóða upp á leiðir og aðferðir til þess að vinna með hvern þátt fyrir sig og lýsa dæmi úr starfi. Ekki er hægt að fara nánar út í þetta hér en rauði þráðurinn í gegnum þetta er að allir eiga að geta þroskast í sjálfsákvörðun. Möguleikar einstaldings til að ná aukinni færni í ofantilgreindum þáttum tak- markast ekki frekar af vitsmunaþroska og líkamlegri getu hans heldur en af hug- myndaflugi, kunnáttu og færni okkar fag- manna í að aðstoða hann við það. Niðurlag Þegar ég las fyrst verk Wehmeyer o.fl. um sjálfsákvörðun var ég alveg heilluð, það kviknaði heil ljósasería í hausnum á mér og loksins vissi ég hvert ég ætla að stefna sem þroskaþjálfi. Þess vegna langaði mig að miðla eitthvað af þessu í greininni og þó að í henni rúmist bara rétt aðalatrið- in, þá vona ég samt að hún hafi verið fræð- andi. En fyrst og fremst langar mig að hvetja til umræðu um þetta málefni. Mér persónulega finnst sjálfsákvörðun fyrir alla vera verkefni framtíðarinnar og getum við byrjað að vinna að því hér og nú. Að öðlast færni til sjálfsákvörðunar er hverjum manni nauðsynlegt og hvert lítið skref í þá átt , hver valmöguleiki, hver ákvörðun tekin af frjálsum vilja, hvert sjálfsett marlunið sem er náð af eigin krafti þýðir aukin lífsgæði fyrir viðkomandi. Við þroskaþjálfar getum aðstoðað þjónustu- notendur okkar við það að öðlast kunn- áttu og verkfæri til að geta orðið sinnar gæfusmiðir. Heimildir 1. Martin, James E. og Paul Sale. 1997. „Self- Determination“. Functional Curriculum, bls. 43-57. Ritsj.: Paul Wehmann og John Kregel. Pro-Ed, Austin, Texas. 2. Nirje, Bengt.1972. „The right to Self-Det- ermination." The Principle of Normalization, bls. 176-200. Ritsj.: Wolf Wolfensberger. Nadonal Institute on Mental Retardation, Toronto. 3. Wehmeyer, Michael L. og Deanna J. Sands. 1996. Self-Determination across the Life Span. Paul H. Brookes Publishing Co, Baltimore, USA. 4. Wehmeyer, Michael L., Martin Agran og Carolyn Hughes. 1998. Teaching Self-Det- ermination to Students with Dissabilities. Paul H. Brookes Publishing Co, Baltimore, USA. 5. Wehmeyer, Michael L., Brian H. Abery, Dennis E. Mithaug, Roger J. Stancliff. 2003. Theory in Self-Determination. Charles C Thomas Publisher, LTD, Springfield, Illinois, USA. 6. Wolfensberger, Wolf. 1986. „Die Entwicklung des Normalisierungsged- ankens.“ Normalisierung - eine Chance fiir Menschen mit geistiger Behinderung, bls. 45-62. Lebenshilfe, Marburg - Lahn. Ruth Jörgensdóttir Rauterberg, BA í þroska- þjálfun 2003. Starfar í Hæfingarstöðinni Fannborg 6.

x

Þroskaþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.