Veiðimaðurinn - 2024, Page 4

Veiðimaðurinn - 2024, Page 4
SVFR 85 ára F orgöngu um stofnun Stangaveiði- félags Reykjavíkur höfðu þeir Gunnar E. Benediktsson lögfræð- ingur og Friðrik Þorsteinsson húsgagna- smíðameistari. Boðuðu þeir til fundar 9. maí 1939, þar sem mættir voru 16 menn sem allir höfðu meira eða minna fengist við stangaveiði í Elliðaánum og víðar. Á þessum fundi var kosin nefnd til að undir– búa stofnun félags og var stofnfundurinn síðan haldinn þann 17. maí. Þar létu 48 menn skrá sig sem stofnendur Stanga- veiðifélags Reykjavíkur, en það nafn ákvað fundurinn að gefið skyldi hinu nýja félagi. Fyrstu stjórn félagsins skipuðu þeir Gunnar E. Benediktsson, formaður, og Friðrik Þorsteinsson og Óskar Norðmann, meðstjórnendur. Málgagn félagsins, tímaritið Veiðimaður- inn, kom svo út ári síðar, í júní 1940. Yfirbjóða mörlandann Við skulum grípa niður í grein sem Gunnar E. Benediktsson formaður ritaði: „Áhugi fyrir stangaveiði hefir hin síðari árin farið mjög vaxandi hér í bænum, og þarf ekki lengi að leita að orsökunum til þess. Í borgarrykinu og sleninu, sem kyrr- setur og innivera skapar, kemur innsta eðlið ríkar fram hjá mönnum en ella, þráin eftir útivistinni í sveitasæluna við fossa- nið og fiskisæl vötn, gerir sínar kröfur, og veiðieðlið hjá Íslendingum, hvort sem er í bæjum eða sveitum, gerir sífellt vart við sig, á hverju sem veltur. En þó að fiskar vaki í ám og vötnum, mæta stangaveiðimanninum ýmsir örðugleikar. Oft er mjög erfitt að fá leigð veiðiréttindi til lax eða silungsveiða á þeim stað og tíma, sem hentar báðum aðilum, leigutaka og eiganda réttindanna. Stangaveiðifélag Reykjavíkur fagnar nú 85 ára afmæli, en félagið var stofnað 17. maí 1939. Málgagnið, Veiðimaðurinn, kom út ári seinna, en þar var tilgangur félagsins tíundaður í skemmti- legri grein sem Gunnar E. Benediktsson ritaði. 4 SVFR 85 ára

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.