Veiðimaðurinn - 2024, Síða 5
Fyrsta stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur
Útlendingar með fjármagni sínu hafa
góða aðstöðu til að yfirbjóða mörland-
ann og hafa náð hér beztu laxám á vald
sitt, ef ekki til afnota allt sumarið, þá að
minnsta kosti þann tíma sem beztur er úr
sumrinu, sem hagstæðastur er í sambandi
við laxagöngur og veiðiskilyrði.Þá hefir
viðvaningsháttur byrjanda og kæruleysi
veiðimanna í veiðiaðferðum með stöng
valdið margskonar erfiðleikum og tjóni,
sem óhjákvæmilega dregur úr og spillir
eðlilegri þróun þessarar íþróttar.
Til þess að draga úr þessum og ýmsum
fleiri örðugleikum, er laxveiðimenn hafa
við að etja, var Stangaveiðifélag Reykja-
víkur stofnað. Jafnframt er það hugmynd
þeirra manna, er stóðu að undirbúningi
félagsstofnunar þessarar, að auka þekk-
ingu þeirra manna, er áhuga hafa fyrir
stangaveiði, á málum þeim er þar að lúta.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur var stofnað
17. maí f. á., hér í bænum. Samkvæmt
ákvæðum félagslaganna er tilgangur
félagsins þessi:
A) Að veita þeim félagsmönnum, sem vilja,
og eftir því sem við verðum komið, aðstoð
til að fá leigð veiðiréttindi í veiðiám og
vötnum.
B) Að vinna á móti því að notaðar séu
veiðiaðferðir, sem eru ólöglegar eða lík-
legar til að spilla veiði.
C) Að auka samvinnu meðal þeirra, er
hafa áhuga á og taka þátt í lax- og silungs-
veiðum,
D) og að veita félagsmönnum fræðslu um
lax- og silungsveiðar, eftir því sem tök
eru á.
Gunnar E. Benediktsson, formaður Óskar Norðmann Friðrik Þorsteinsson
Veiðimaðurinn 5