Veiðimaðurinn - 2024, Síða 10
„Menn koma svangir í hús, búnir að vera úti í alls
konar veðrum. Það er alltaf mikil ánægja og hefur
gengið vel á meðan við höfum verið þarna.“
Ætla að keyra á því besta
„Við reynum bara að gera þetta svipað og
hefur verið síðustu ár,“ segir Viktor um
stefnuna sem tekin verður í matargerðar-
listinni í Langárbyrgi. Alltaf verði boðið
upp á eitthvað spennandi. Fólk megi
eiga von á góðu innan úr eldhúsinu. „Við
ætlum að keyra á því besta sem þarna
hefur verið gert.“
Viktor segir veiðimenn yfirleitt vera þakk-
láta matargesti. „Menn koma svangir í
hús, búnir að vera úti í alls konar veðrum.
Það er alltaf mikil ánægja og hefur gengið
vel á meðan við höfum verið þarna.“
Verið er að bæta nýrri viðbyggingu
við Langárbyrgi. Viktor kveðst mjög
spenntur fyrir því að herbergjum fjölgi.
Bætt aðstaða fyrir starfsfólk
„Það er aukin þjónusta við gesti sem
geta fengið einstaklingsherbergi en það
er mikil krafa um það. Það verður líka
mun betri aðstaða fyrir starfsfólkið, sem
er mjög gott. Herbergin voru þröng og
menn þurftu að sofa tveir og tveir saman,“
segir Viktor.
Landeigendur opna Langá að venju og
munu Viktor og félagar annast matar-
gerð fyrir þann hóp, enda komnir áður á
staðinn til að standsetja og gera allt klárt.
„Bændurnir byrja og svo kemur fyrsta
almenna hollið,“ segir Viktor og játar
því að alltaf fylgi því mikil spenna að sjá
hvernig veiðisumarið byrjar.
Eins og fimm stjörnu hótel
„Það er mjög gaman að rífa húsið úr dvala
vetrarins og það er alltaf gaman þegar
veiðin byrjar vel, það gefur góð fyrirheit
og jákvæðni fyrir sumarið. Það er alltaf
skemmtilegast en þetta er þó samt orðið
þannig að fólk er að njóta sama hvernig
veiðin er, því þetta er orðið svo flott, góð
aðstaða og góður matur. Þetta er eins og
fimm stjörnu hótel,“ segir Viktor.
Um veiðihorfur sumarsins segist
Viktor ávallt hafa sömu spána. „Ég er
alltaf bjartsýnn og held að þetta verði
gott veiðisumar.“
10 Veiðimenn eru þakklátir matargestir