Veiðimaðurinn - 2024, Page 18
Hert eftirlit og hærri sektir
Á síðasta ári varð stórslys. Þúsundir frjórra
eldislaxa sluppu úr sjókví Arctic Fish í Pat-
reksfirði. Fljótlega var upplýst að 95 dagar
hefðu liðið án þess að fyrirtækið kannaði
ástand kvíarinnar en á henni voru tvö göt.
Samkvæmt lögum hafa sjókvíaeldisfyrir-
tæki eftirlit með sjálfum sér.
Staðfest er að eldislaxinn leitaði upp í fjöl-
margar ár á Vestfjörðum, sem og Vestur- og
Norðurlandi. Langtímaafleiðingar þessa
eiga eftir að koma í ljós en fullvíst er að
hluti þessara eldislaxa af norsku kyni hefur
blandast villta íslenska laxastofninum.
Þetta er langt í frá einsdæmi, því á hverju
ári berast fréttir af slysasleppingum í
sjókvíaeldi án þess að þær hafi nokkrar
afleiðingar fyrir sjókvíeldisfyrirtækin.
Árið 2021 sluppu sem dæmi 82 þúsund
eldislaxar úr sjókví Arnarlax í Arnarfirði. Í
þessu sambandi má benda á að stærð villta
íslenska hrygningarstofnsins er 70–80
þúsund laxar. Þetta er ójafn leikur. Nátt-
úrunni í óhag.
Ábyrgð stjórnvalda í sjókvíaeldismálum
er mikil því það voru þau sem bjuggu til
rammann utan um starfsemina eins og
hún er í dag. Ramma þar sem náttúran
og villti íslenski laxinn hafa aldrei fengið
að njóta vafans.
Fyrir ári birti Ríkisendurskoðun skýrslu
um sjókvíaeldi þar sem dregin var upp
dökk mynd. Í skýrslunni segir að stjórn-
sýsla og eftirlit með greininni hafi reynst
„veikburða og brotakennd og vart í stakk
búin til að takast á við aukin umsvif
greinarinnar á síðustu árum. Breytingum á
lögum um fiskeldi, sem var ætlað að stuðla
að vexti og viðgangi greinarinnar í sátt
við bæði samfélag og umhverfi, var ekki
fylgt eftir með því að styrkja stjórnsýslu og
eftirlit þeirra stofnana sem mæðir mest á“.
Aðalfundur SVFR skorar á stjórnvöld að
bregðast við þessu. Aðalfundur SVFR telur
ótækt að sjókvíaeldisfyrirtækin hafi eftirlit
með sjálfum sér. Það er fullreynt og ljóst
að óháður aðili þarf að annast eftirlitið.
Reynslan sýnir að herða þarf eftirlit með
starfseminni til mikilla muna.
Samkvæmt drögum að frumvarpi til
laga um lagareldi hefur Matvælastofnun
heimild til að beita dagsektum fari
rekstrarleyfis hafar ekki að fyrirmælum
stofnunarinnar samkvæmt lögunum eða
reglugerðum. Dagsektirnar mega nema allt
að einni milljón á sólarhring og á sektar-
fjárhæðin að renna í ríkissjóð.
Aðalfundur SVFR skorar á stjórnvöld að
breyta orðalaginu þannig að dagsektir
Á aðalfundi Stangaveiðifélags Reykjavíkur, sem haldinn var
29. febrúar síðastliðinn, var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Aðalfundur SVFR skorar á stjórnvöld að bregðast við því ófremdarástandi
sem skapast hefur í sjókvíaeldismálum við strendur Íslands.
18 Hert eftirlit og hærri sektir