Veiðimaðurinn - 2024, Page 58

Veiðimaðurinn - 2024, Page 58
Eɷir Steingrím Sævarr Ólafsson „Þeir sem eitt sinn hafa veitt í Laxá í Laxárdal verða fastagestir. Hún heillar þig, hún bræðir þig, hún fangar þig,“ var eitt sinn sagt um þessa veiðiperlu og það er kannski ekki skrýtið, miðað við að meiri- hluti veiðinnar síðustu ár er fiskur yfir 60 cm. Þeir eru kannski færri fiskarnir en í Laxá í Mývatnssveit, en þeir eru stærri. Veiðisvæðið er stórt, nær yfir meirihluta Laxárdals, og eftir að veiða/sleppa fyrir- komulagið var tekið upp er óhætt að segja að stofninn hafi tekið við sér, stækkað og dafnað. Síðasta sumar veiddust yfir 1.000 fiskar í ánni, sem er það mesta um langt árabil. Mikil eftirsókn er eftir leyfum í þessa mögnuðu á og stór hópur veiði- manna hefur um árabil átt sín föstu holl. Alltaf að læra eitthvað nýtt Það er við hæfi að fara í stutta yfirferð um Dalinn með þessum fastagestum. „Laxár- dalurinn er algjört himnaríki á jörð. Ég hef veitt þar alltaf í byrjun sumars síðan á síð- ustu öld og það er eitthvað sem togar alltaf Fá urriðasvæði eru jafn rómuð fyrir stóra fiska, náttúrufegurð og Laxá í Laxárdal. Svæðið er oftast kallað Dalurinn og hvort sem um er að ræða þurrfluguveiði, púpu- veiði eða straumfluguveiði er þar boðið upp á kjöraðstæður og stærri fiska en geng- ur og gerist. „Laxárdalurinn er himnaríki á jörð,“ segir einn fastagestanna. 58 Dalurinn – himnaríki á jörð

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.