Veiðimaðurinn - 2024, Side 72

Veiðimaðurinn - 2024, Side 72
72 10/10 4/10 Næsta veiðiferð? Búin að bóka Hítará II og Grjótá með Sér- sveitinni. 5/10 Ómissandi í hverja veiðiferð? Aðallega góðir veiðifélagar. Það er allra mikilvægast og ég hef verið sérlega lán- söm hvað það varðar. Af dauðum hlutum ætla ég að nefna góðan stangahaldara á bílinn, hef nefnilega lent í að gleyma honum heima og það er vesen. 6/10 Uppáhaldsflugan í fluguboxinu? Í augnablikinu er það Hexagon Frances svört með gulum haus, hef fengið fisk á hana nokkrum sinnum. 7/10 Nýjasta veiðidótið? Fyrir utan fína veiðijakkann minn, sem er það sem ég keypti síðast og er varla hægt að kalla veiðidót, held ég að ég nefni spólu- box sem ég get hengt utan á mig og heldur utan um fjórar spólur af girni. Alger snilld. 8/10 Uppáhaldsveiðistaðurinn? Mjóihylur í Flókadalsá í Borgarfirði. Til að komast að honum þarf að klöngrast niður bratta skriðu og þá taka við klappir sem staðið er á. Ég veiði hylinn þannig að ég kasta niður eftir straumnum yfir á klappirnar sem eru hinum megin. Læt reka aðeins og dreg svo fluguna rólega upp eftir hylnum. Dásamlegur staður. 9/10 Eftirminnilegasti fiskurinn? Þetta er erfið spurning því að sjálfsögðu eru þeir nokkrir mjög minnisstæðir. Ef ég á að nefna aðeins einn þá hlýtur það að vera maríulaxinn sem ég veiddi á Alviðru- svæðinu í Soginu árið 1999. Veiðiaðferðir hafa breyst mikið síðan þá og til hins betra að mínu mati. Maríulaxinn fékk ég á 18 gramma svartan og gylltan Toby-spún í öskrandi rigningu. Þetta var hængur sem vóg 21 pund en var þó ekki nema 96 cm langur – spikfeitur. Við Guðbjörg vin- kona mín og veiðifélagi vorum ekki með nægilega stóran háf svo að ég eiginlega dröslaði honum eftir sandinum og hún notaði háfinn eins og skóflu og mokaði honum á land. Við hlógum eins og vit- leysingar, enda adrenalínið alveg á fullu. Við vorum rennandi blautar yst sem innst enda áttum við ekki eins góða veiðijakka og í dag og spún hef ég ekki veitt á í mörg ár. Þetta var mjög eftirminnileg ferð þar sem allar sex veiðikonurnar í Sérsveitinni veiddu lax, enda ekta veiðiveður. 10/10 Hverjir eru helstu kostir góðs veiðifélaga? Það er eins og með annað í mannlegum samskiptum að þar sem tveir eru saman í tvo eða fleiri daga er jafnvægið það sem skiptir máli. Að ná jafnvægi þannig að báðir aðilar njóti sín og fái um það bil sama tíma í veiðinni. Helst þannig að það þurfi í raun ekki að ræða það neitt, skiptin bara eiga sér stað og ekki eins og það þurfi að vera á klukkunni. Samvinna en ekki samkeppni milli veiðifélaga, að kunna að samgleðjast þegar veiðist og hafa gaman saman. VEIÐIBÓKIN Í ÁR Komdu að veiða með Sigurði Héðni í sumum af bestu veiðiám landsins. Ómissandi bók fyrir allt laxveiðifólk, bæði byrjendur sem lengra komna.

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.