Veiðimaðurinn - 2024, Side 74

Veiðimaðurinn - 2024, Side 74
74 5 ótroðnar slóðir á Fjallinu í Langá ótroðnar slóðir á Fjallinu í Langá Eɷir Trausta Hafliðason Þegar veiðimenn veiða fjallið í Langá er auðvelt að festast í Kamparí og Koteyrar- streng, enda frábærir veiðistaðir. Fjallið býður hins vegar upp á svo mikið meira og fékk Veiðimaðurinn hinn þrautreynda veiðimann Karl Lúðvíksson, eða Kalla Lú, til að benda á fimm staði sem þú mátt ekki láta framhjá þér fara. Langá á Mýrum er án vafa ein fallegasta á landsins. Hún er gríðarlega fjölbreytt og aðgengileg fyrir veiðimenn, því að slóðar liggja að nánast hverjum einasta veiðistað árinnar. Efri hluti árinnar kallast fjallið. Það er svæði sem teygir sig frá Sveðjufossi og upp að Ármótafljóti, sem er efsti veiðistaður árinnar, númer 93. Þar skammt fyrir ofan er Langavatn, þar sem Langá á upptök sín. Á Fjallinu rennur áin um gil en einnig eru eyrar um miðbik svæðisins. Þekktustu og vinsælustu veiðistaðirnir eru einmitt á þessum eyrum og er þá helst verið að tala um Kamparí, Neðri Kamparí og Koteyrar- streng. Þessi staðir geyma alltaf laxa og þar geta veiðimenn eytt löngum tíma. Þá gleymist stundum að á fjallinu eru margir aðrir góðir veiðistaðir, sem sumir eru allt of lítið stundaðir. Karl Lúðvíksson, oftast kallaður Kalli Lú, hefur veitt í Langá um árabil. Hann var staðarhaldari við ána um nokkurra ára skeið og hefur einnig verið leiðsögumaður þar. Hann þekkir því hvern streng og hvert grjót í ánni. Veiðimaðurinn fékk Kalla til að benda á fimm veiðistaði á fjallinu sem unnendur Langár ættu að prófa. Hann byrjar efst og veiðir niður ána.

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.