Veiðimaðurinn - 2024, Qupperneq 91
og vatnsbúskapur gerði lítið til að glæða
veiðina – jafnvel þótt Langá sé betur varin
gegn þurrkum en margar aðrar ár, vegna
miðlunar við útfall Langavatns. Aðeins
einu sinni yfir veiðitímann fór vikuveiðin
yfir 100 laxa, en það var dagana 17.–23.
júlí eftir að langþráð rigning hafði hreyft
við laxinum.
Ástæða er til að geta þess að töluverðar
breytingar urðu á sjálfri ánni milli ára
vegna mikils klakaburðar í árfarveginum
síðasta vetur. Margir veiðistaðir skemmd-
ust og sumir urðu nánast óþekkjanlegir,
t.d. Bárðarbunga, Hreimsáskvörn og Hóls-
breiða. Kann þetta að skýra hversu lítið
veiddist á þessum stöðum.
Í lok sumars höfðu 709 laxar komið á land í
Langá, sem er töluvert undir meðaltali síð-
ustu átta ára. Efri Hvítstaðahylur, Breiðan,
Strengir, Stórhólakvörn og Hreimsásbreiða
voru gjöfulustu veiðistaðirnir árið 2023.
Haugur, Silver Sheep og Sunray Shadow
gáfu flesta fiska.
Sumarið 2023 varð sú breyting í Langá að
efsta svæðið svokallaða rann í fyrsta sinn
undir merkjum SVFR. Þetta er fjögurra
kílómetra langt veiðisvæði frá útfallinu
úr Langárvatni niður að Ármótum, sem
geymir bæði lax og stóra bleikju. Hafa
landeigendur nýtt þetta svæði í eigin þágu
þar til nú. Seldir voru stakir dagar frá 1.
ágúst og komust færri að en vildu.
Langá er eitt af mikilvægustu ársvæðum
SVFR. Stangardagarnir eru ríflega 1.100
talsins og fjárhagsleg skuldbinding félags-
ins í takt við það. Því er nauðsynlegt að
ástand árinnar sé eins gott og frekast er
unnt og full ástæða er til að skoða betur
möguleika á seiðasleppingum í ána. Þá er
brýnt að bæta áfram aðstöðu veiðimanna,
dytta að veiðihúsinu og efla þjónustuna.
Síðasta vetur var eldhúsið endurnýjað og
nú vinnur veiðifélag árinnar að stækkun
veiðihússins. Það verður spennandi að sjá
nýju viðbygginguna þegar líður að sumri.
Miðá
Mikið vatn var í Miðá í Dölum við opnun
árinnar og frábær stemning. Bæði bleikjan
og laxinn voru mætt og opnunarhollið
gerði góða veiði. Þótt aðeins séu tvö veiði-
sumur liðin frá því að SVFR samdi um
veiðirétt í Miðá hafa félagsmenn tekið
ástfóstri við ána, enda er vatnasvæðið
skemmtilegt og veiðihúsið gott.
Miðá getur verið viðkvæm í miklum
þurrkum en þrátt fyrir það var júlímán-
uður með besta móti. Vatnsleysi hafði
veruleg áhrif á veiðina í ágúst en með
rigningu í september varð lokasprettur-
inn góður. Þannig var vikuveiðin mest
18.–24. september, sem gjarnan er frábær
tími í ánni. Alls veiddust 144 laxar í Miðá
sumarið 2023, sem var 10 löxum meira
en árinu áður. Þá komu 192 sjóbleikjur á
Ár Fjöldi laxa
2023 709
2022 1077
2021 832
2020 1086
2019 659
2018 1635
2017 1701
2016 1433
Laxveiði í Langá
Veiðimaðurinn 91