Mímir - 01.05.1972, Blaðsíða 7
í textanum hér á eftir, að hann þekkti þessar
eyjar vel. Ef segja má, að hann hafi búið á
einhverri þeirra, hafa munkar þeir, sem hann
ræddi við, einnig búið þar, og hefðum við þá
sönnur fyrir því, hvaðan a. m. k. nokkrir þeirra
einsetumanna komu, sem voru hér á landi.
Dicuilus hefur ritað þau rit sín, sem þekkt
eru og ársett, á tímabilinu 814—825. I De
Mensura styðst hann aðallega við Plíníus, Sólí-
nus, Isidor og Priscíanus. I 7. kafla segist hon-
um svo frá:
„Ekki geta bækur um, að eyjar hafi fundizt í haf-
inu vestur eða norður af Spáni. Umhverfis okkar
eyju, Híberníu (Irland) em eyjar, sumar lidar, aðrar
örsmáar. Nálægt eyjunni Brittaníu (Bretlandi) eru
margar eyjar, sumar stórar, aðrar litlar og enn aðrar
meðalstórar. Sumar em í hafinu til suðurs, aðrar til
vesmrs, en flestar em í norðvesmr eða norður. Á sum-
um þessara eyja hef ég dvalizt, stigið á land á öðrum;
sumar hef ég aðeins séð, um aðrar lesið."8
Sést á þessum texta, að Dicuilus hefur þekkt
þessar eyjar og dvalizt þó nokkurn tíma á
þessum slóðum, hvort sem hann var ættaður
þaðan eða ekki.
Hann heldur áfram og vitnar í ummæli
ýmissa manna um Thule:
„Plíníus yngri fræðir okkur um það í 4. bók sinni,
að Pýþeas frá Massilíu segi, að til Thule sé '6 daga
sigling frá Bretlandi. Um sömu eyju, sem alltaf var
óbyggð, segir Isídórus í 14. bók orðskýringa sinna:
Thule er fjarlægust eyja í hafinu, liggur í norðvestur-
átt handan við Bretland, dregur nafn sitt af sólu, þar
sem sól kemst þar í sumarsólstöður. Priscíanus tekur
enn skýrar til orða um þessa sömu eyju í „Periegesis":
Að fara á bátum yfir vítt úthafið og koma til Thule,
sem ljómar á degi og nóttu undir geislum sólar, er
hann ekur vagni sínum að öxli dýrahringsins og lýsir
upp norðurheim með kyndli sínum. Júlíus Sólínus
skrifar enn Ijósar og gjörr um þessa sömu eyju, og
er hann talar um Bretland, skrifar hann eftirfarandi
í safni sínu: Hin fjarlæga Thule, þar sem engin nótt
er um sumarsólstöður, er sól fer um krabbamerkið;
og á svipaðan hátt enginn dagur um vetursólstöður."9
Dicuilus segir Thule alltaf hafa verið óbyggt.
Virðast það fremur vera orð hans sjálfs, en að
hann hafi það eftir Isidor. Fróðleik þennan ætti
hann þá að hafa frá munkunum, sem hann
talaði við.
’Síðan kemur kafli um Thule:
„Það eru nú 30 ár síðan nokkrir klerkar, sem
bjuggu á þessari eyju frá 1. febrúar til 1. ágúst,
sögðu mér, að ekki aðeins um sumarsólhvörf, heldur
einnig dagana fyrir og eftir, væri sem sólin feldi
sig einungis bak við litla hæð við sólsetur á kvöldin,
þannig að ekki rökkvaði þessa stuttu stund og gera
mætti hvað sem menn hefðu löngun til, sem sólskin
væri, jafnvel tína lýs úr skyrtu sinni; hefðu þeir
klifið upp á fjallstind, hefði sólin ef til vill aldrei
horfið frá þeim. Á miðri þessari stund er miðnætd
um miðbik jarðar, og því held ég, að um vetrarsól-
hvörf, og nokkra daga á undan og eftir, sjáist sólin
mjög stutta stund á Thule, er miður dagur er um
jarðarmiðju. Þess vegna hafa þeir rangt fyrir sér og
veita rangar upplýsingar, sem segja, að hafið um-
hverfis Thule sé frosið, og að sífelldur dagur sé frá
jafndægri á vori til jafndægurs á hausti, en sífelld
nótt frá jafndægri á hausti til jafndægurs á vori. Þar
sem þessir menn ferðuðust þangað á þeim tíma árs,
er kalt hlaut að vera, stigu á land og höfðu, meðan
á dvölinni stóð, dag og nótt til skiptis nema um
sólstöðurnar. En dags siglingu norðar fundu þeir fros-
ið haf."lO
Líklegt virðist, að hér sé rætt um ísland. Frá-
sögn þessi er einnig í samræmi við íslenzkar
heimildir, sem segja, að hér hafi verið írskir
munkar, er landnámsmenn stigu á land um 870.
Munkar þeir, sem Dicuilus talar um, hljóta að
hafa verið á eyju þessari árið 795 eða fyrr, því
að hann segir þá hafa tjáð sér þetta fyrir 30
árum, en ritið er skrifað árið 825. Það er at-
hyglivert, að 1. febrúar er kenndur við heilaga
Birgitm, þjóðardýrling Ira, en ósennilegt er, að
munkarnir hafi komið til Thule nákvæmlega á
þeim degi. Hitt er afmr líklegra, að þeir hafi
miðað 1. ágúst við brottför sína, en sá dagur
var helgaður ferðalögum.
Það styrkir heimildargildi frásagnar Dicuilus-
ar, að hann hafnar alveg þeirri hugmynd, að á
Thule skiptist á nótt í sex mánuði og dagur í
sex mánuði. Þessi hugmynd var reyndar byggð
á misskilningi og var almenn á dögum Plíníus-
ar. Var Thule mglað saman við svæðið frá
norðurpól til norðurheimsskautsbaugs.11
7