Mímir - 01.05.1972, Page 16

Mímir - 01.05.1972, Page 16
Mynd. 4: Bjalla og skrín heilags Patreks. (mynd: úr Þjóðminjasafninu í Dyflini). yfirleitt frá síðari tíma, og hið sama er að segja um íburðarmikil skrín, sem gerð voru utan um sumar þeirra. Bjalla heilags Patreks, sem er frá 5. öld, er elzt þeirra allra. Er hún, ásamt skríni því, sem gert var utan um hana um 1100 e. Kr., í Þjóðminjasafninu í Dyflini. Þetta er hömruð járnbjalla, gerð úr tveimur járnplöt- um, 734 þumlungar á hæð að meðtöldu litlu haldi. I lok 8. aldar breyttist bjöllugerðin, og koma þá fram steyptar bronsbjöllur af mismunandi stærðum og gerðum. Bjöllurnar virðast hafa verið notaðar sem handbjöllur, lamdar eða hringt með klukku- streng. Þær hafa ekki verið háværar, enda áttu þær aðeins að kalla saman munkana, sem voru við störf í nágrenninu, en ekki heilan söfnuð. Af myndum á steinum fæst góð hugmynd um 8. aldar bagal ábóta eða biskups. Virðist hann hafa verið stuttur og efri hlutinn boginn, eins og á venjulegum göngustaf. I Þjóðminja- safninu í Dyflini má sjá nokkur íburðarmikil hylki undan böglum, sem þeir virðast hafa verið geymdir í, en þau eru nú það eina, er varðveitzt hefur. Þriðji dýrgripur munkanna, og e. t. v. sá mikilvægasti, voru bækurnar, sem þeir höfðu með sér, hvert sem þeir fóru. Siður var á Irlandi að geyma bækur og flytja þær milli staða í leðurtöskum, sem héngu yfir öxlina. Voru þær nefndar bókatöskur. Fyrirbæri þetta þekkist ekki 16 meðal annarra vestrænna þjóða, en var algengt í Austurlöndum. 5. Trúboð og einsetumannalifnaður voru ríkir þættir í írskum klaustrum. Irskir munkar fóru snemma að leggja land undir fót, og þegar á 6. öld fóru þeir allt til meginlandsins. Þetta var ekki skipulögð hreyfing, og stjórnaðist oft- ast fremur af lönguninni í það að fórna sér fyrir trú sína en trúbaðsáhuga. Fjölskyldan var Irum allt; einn var einstaklingurinn ekkert. Að yfir- gefa land og þjóð var því hörð sjálfsafneitun, og töldu munkarnir það meinlæti. Sú sögn er til, að Kolumkilli hafi verið sendur til Eyjar- innar helgu í refsingarskyni, og leggur síðari tíma skáld honum þessi orð í munn, er hann yfirgaf írland: „Dapur mun ég yfirgefa Irland; ég mun aldrei afmr líta menn og konur Irlands." Gæm orð þessi vel lýst hugarástandi margra þeirra munka, sem yfirgáfu landið fyrir trú sína.25 Langflestar heimildir um trúboðana em af erlendum toga spunnar, þar sem írskir annála- ritarar nefna þá örsjaldan í annálum, er þeir eru einu sinni farnir úr landi. Trúboðarnir vökm mikla athygli á megin- landinu, þar sem þeir voru öðmvísi á háttum en þeir predikarar, sem fólk þar átti að venj- ast. Þeir fóru vanalega margir saman. Klæðn- aður og útlit var hið sama og hjá írskum munk- um yfirleitt, þ. e. hvímr kyrtill úr fíngerðu efni innst klæða, grófur kufl úr sauðalimm þar utan yfir og sandalar á fótum. Krúnurakstur var sérstæður og augnalok máluð svört. A öxlinni dinglaði vatnsflaska úr leðri og bókataskan, sem í var ein eða fleiri bækur og helgir dómar. Sín á milli töluðu þeir írsku, latínu við þá, sem hana skildu, en notuðust við túlk, er þeir predikuðu. Oft setmst þeir að, þar sem þeir komu, og lærðu þá viðkomandi mállýzku.26 Munkar þessir stofnuðu víða klausmr, sem átm eftir að verða miklar menningarmiðstöðv- ar. Er þar fyrst að nefna klaustrið á Eynni helgu, sem Kolumkilli stofnaði ásamt 12 læri-

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.