Mímir - 01.05.1972, Page 22
sér, að svona hafi sauðfé á norðurhveli jarðar
almennt litið út áður fyrr.
Nú ætti að vera ljóst, að ekki er um að ræða
eitt einasta atriði, sem sýnir fram á örugga
komu írskra munka hingað til lands. Allt
er þetta byggt á líkum, tillögum og möguleik-
um. Þannig má endalaust bæta við, en endan-
leg niðurstaða verður engin, fyrr en eitthvað
finnst hér á landi, — eða finnst ekki, sem
leiðir hið sanna í ljós.
Ljóst er af öllum þeim frásögnum, sem til
eru um ferðir írskra munka, að þeir hafa haft
einhverja hugmynd um lönd langt í norðri,
hver svo sem þau hafa verið. Vitað er, að þeir
komust til Færeyja, en á það má benda, að
þaðan er ekki langt til íslands. Allt virðist því
benda til þess, að þeir hafi verið hér, en sterk-
asta heimildin er líklega rit Dicuilusar munks.
Munkar þessir hafa raunar ekki bætt miklu
við sögu okkar, né breytt henni. Þeir hafa að
öllum líkindum verið einir síns liðs og ekki
aukið kyn sitt hér á landi.
Hvað sem öllu þessu líður, ber okkur skylda
til að reyna að komast að hinu sanna um þessa
fyrstu íbúa landsins, sem mest vissa er fyrir, að
hafi verið hér. Vonandi læmr fornleifafræðin
þar meira til sín taka en raun hefur verið á til
þessa.
Reykjavík, í desember 1971.
TILVITNANIR:
1 G. J. Marcus, handrit.
2 Islendingabók — Landnámabók 1968, 7. neðan-
málsgrein.
3 Sama, bls. 5.
4 Sama, bls. 31—2.
5 Sama. Sbr. 2. neðanmálsgrein bls. 32.
6 Sama, bls. L—CLIV (formáli).
7 Sama. Sbr. 3. neðanmálsgrein bls. 32.
8 Dicuilus, bls. 73.
9 Sama, bls 75. Einnig stuðzt við Einar Ol. Sveins-
son 1948 a, bls. 17.
10 Sama, bls. 75.
11 Sama. Formáli.
12 Sama, bls. 75 og 77.
13 Fróðskaparrit, 19. bók 1971, bls. 147—156.
14 Einar Ól. Sveinsson 1948 a, bls. 10.
15 íslendingabók — Landnámabók 1968, bls. 35.
16 Dillon 1963, bls. 37—8.
17 I. Henderson 1967.
F. T. Wainwright 1964.
A. W. Brpgger.
18 Orkneyinga saga 1968, bls. 163—4.
19 Hákonar saga hins gamla.
Flateyjarbók III, bls. 178.
20 A. A. King 1959, bls. 198—9.
21 T. W. Moody — F. X. Martin 1966, bls. '68—9-
22 Hood 1946, bls. 14.
23 F. T. Wainwright 1964, bls. 166—7.
E. Bakka 1969, bls. 34—6.
24 F. Henry 1965, bls. 50—57.
Sama 1957.
de Paor 1958, bls. 54—55.
25 de Paor 1958, bls. 52.
26 p. W. Joyce 1903 I, bls. 343.
27 Einar Ól. Sveinsson 1948 b, bls. 168.
28 p. Johnstone 1964, bls. 277—278.
29 Marcus, handrit.
30 Islendingabók — Landnámabók 1968, bls. 107.
31 Annálar II, bls. 208.
32 Rit þess íslenzka lærdómsfélags VII., bls. 49-
33 íslendingabók — Landnámabók 1968, bls. 318
og 319.
34 Sigurður Björnsson 1971, bls. 36—42.
35 íslendingabók — Landnámabók 1968, bls. 322
og 324.
36 Sama, bls. 52.
37 Sama, bls. 356.
Mynd 1: Úr bók E. Bakka 1969.
Mynd 2: Úr bók F. Henry 1957.
Mynd 3: Úr bók F. Henry 1965.
Mynd 4: Úr Þjóðmynjasafninu í Dyflini.
Mynd 5: Guðrún Sveinbjarnardóttir.
Mynd 6: Guðrún Sveinbjarnardóttir.
22