Stefnir - 15.08.1947, Page 10

Stefnir - 15.08.1947, Page 10
hvern tíman mundi þetta enda vel. Að ekki kæmi þriðja síldar- leysisvertíðin, og eftirsókn allra eftir þeim afurðum mundi auð- velda sölu annarra afurða fyrir það verð, sem nægði. Margt hef- ur því miður brugðizt af þessum barnaskap, og þó mun enn minni von um framhald slíks verðlags. Lýtur helzt út fyrir, að iandinn verði að greiða sjálf- um sér uppbætur. Sjá víst flest- ir, hve lengi það getur verið haldgott bjargráð. Alvaran ein gildir. Síðan allt þetta gerðist hefur tíminn liðið, án þess að full- nægja vonum hinna bjartsýn- ustu manna. Hvað sem segja má um horfur og endanlega afkomu yfirstandandi árs, er því miður enn dekkra framundan. I júlí- mánuði sl. komu útvegsmenn saman á aðalfund sinn. Sýndi samþ. fundarins í dýrtíðarmál- inu, (sem birt er á öðrum stað í þessu riti), að framleiðsla sjávar- afurða er í beinni hættu, og ekki arðgæf fyrir þjóðina, nema ráð- izt verði á framleiðslukostnað- inn. Er þar ekki aðeins um kaup- gjald að ræða, heldur allt það á sjó og landi, sem skapar og við- heldur þeirri hættu, að lífæð atvinnuveganna hætti að slá og starfa. Fyrir því óskuðu útvegs- menn þess, að allir aðilar, sem mál þetta varðar fyrst og fremst, næðu saman undir for- ustu ríkisstjórnarinnar, til þess í alvöru og af fullri einlægni, að finna varanlega lausn á þessu mesta vandamál þjóðar vorrar. Vonandi verður ekki lengur gengið fram hjá frumkvæði útvegsmanna í þessu vandamáli og þeirri festu, er þeir hafa sýnt um raunhæfa, varanlega lausn. Samtök litvegsmanna. Lengst af hefur aldrei verið um heildarsamtök útvegsmanna að ræða, það eru aðeins fá ár síðan samtök þeirra voru fast- ákveðin og fullmótuð. En sá tími hefir fært þá mikið saman, aukið félagslegan þroska þeirra, skilning á nauðsvn og gagnsemi slíkra heilsteyptra samtaka um öll sín mál. Ekki aðeins inná- við, heldur útávið. Það mun þá bezt sannast, þegar mest á reyn- ir, og erfiðast verður um að láta endana ná saman. Það mun enn sem oftar sannast, að Grettis- tökum verður vart lyft nema með sameiginlegu átaki þrótt- mikilla samtaka, þar sem eitt og einn styður annan til þess að 6 STEFNTR

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1961

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.