Stefnir - 15.08.1947, Síða 17

Stefnir - 15.08.1947, Síða 17
Um markaðsmál Eftir Jóhannes G. Helgason. í fyrirmælum þeim, er Char- les II. Englandskonungur gaf brezka Verzlunarráðinu, sem hann stofnaði á 17. öld, segir m. a.: „. . . Yður bera að taka ti! yfir- vegunar þá erfiðleika, sem brezk verzlun hefir átt við að stríða hvarvetna utanlands. Ennfrem- ur að rannsaka þær greinar fyrri samninga, sem hafa verið gerðir við prinsa og ríki, er snerta verzlunarviðskipti. . . Yður ber að athuga alvarlega og rannsaka gaumgæfilega, hvort innflutn- ingur erlendra vara yfirstígur ekki útflutning þeirra, sem inn- lendar eru og hvernig megi svo hagræða, leiðrétta og koma fyrir aQ vér getum haft fleiri seljencl- ur en kaupendur í hverju landi heims.“ Verzlunarstefna Breta hefir á síðustu öldum grundvallast á þessari meginreglu — að hafa íleiri seljendur en kaupendur í hverju landi. Sú stefna hefur fært þeim blómaskeið í heima- landinu og verið hyrningar- steinn í heimsveldisbyggingu þeirra. Þessi stefna byggist á þeim sannindum, að salan sé frumat- riði og aðalatriðið í skiptum þjóðanna jafnt sem í skiptum einstaklinga. Salan ákveður kaupmáttinn. Því meiri sala því meiri kaupmáttur og því meiri hagnaður því salan felur að jafn- aði í sér stærri hluta hagnaðar- ins af viðskiptunum en kaupin. Salan — útflutningurinn — er því meginatriðið en innflutning- urinn veigaminna mál þó mikil- vægur sé. Sé nærtæk líking tekin má líkja þessari sölustefnu við ein- staklinginn, fjölskyldufaðirinn, sem finnur að höfuðverkefnið sé að afla teknanna með sölu vinnu sinnar eða þjónustu í einhverju formi og hagar lífi sínu í sam- STEFNIR 13

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1961

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.