Stefnir - 15.08.1947, Side 28

Stefnir - 15.08.1947, Side 28
ast í augu við fátækt, ógæfu og hrun. Það getur eklci farið á ann- an veg. Styrjaldarmarkaðirnir eru horfnir. Friðar markaðirnir í Evrópu eru nú þegar að færast í eðlilegt horf, og tala botnvörp- unga og fiskimanna Evrópu- þjóðanna á höfunum eykst frá degi til dags. Og það sem verst er, tölu þessara fiskimanna fjölgar á og í nágrenni íslenzkra fiskimiða. Hvað ætlar Island að gera, þegar það hefur við svo stranga samkeppni að etja? Eg benti á í síðustu grein minni í Morgunblaðinu nýlega, vissa þróun sem nú er í framkvæmd og benti á, að Isiand ætti að koma framkvæmdum á nú þeg- ar til verndunar hagsmuna sinna. En þetta er diplómatiskt við- fangsefni fyrir íslenzku ríkis- stjórnina. Það eru aðrar hliðar á þessu öllu, og þær liggja um hendur ísl útvegsins (L. I. U. Þekking er sama og vald — enginn getur neitað því. En það er ekki auðvelt að afla sér þekk- ingar, og þekking er gagnlaus nema hún sé notfærð á réttan hátt. Enginn kaupsýslumaður verður happasæll og dugandi nema hann þekki allar stað- reyndir sem viðkoma verzlun hans, og sem viðlcoma keppi- nautum hans. Þegar hann hefur aflað sér þekkingar á þessum staðreyndum er hálfur sigur unninn, og þegar hann notfærir sér þessar staðreyndir á réttan hátt, er fullur sigur unninn, og hann er sigurvegarinn. Islenski sjávarútvegurinn verður að gera slíkt hið sama. Hann verður að viða að sér uin víða veröld fréttum, vitneskju, skýrslum, fréttir af fundum og ráðstefnum og umræðum, sem líkur eru til að hafa áhrif á sjávarútveginn. Hann verður að samstæða þess- ar fréttir og kvnna sér þær, með- limir hans verða að ræða þær, og hann verður að hefja fram- kvæmdir fljótt, þegar liann hefur aflað sér þekkingarinnar. Eg hefi fengist við ritstörf í mörg ár, og átt nokkuð við stjórnmál; eg hefi kynnt mér mörg framandi lönd og atvinnu- vegi þeirra, og mig hefur alltaf undrað, að íslendingar yfirleitt, vita ekki hvað er að ske í sjávar- útvegi veraldarinnar. Þetta verður að lagfærast. Annars er Island í vaxandi hættu. A morg- un getur, Noregur eða eitthvert annað land byrjað eitthvað á- form, fundið einhverja hug- mynd eða bragð, sem gæti haft lamandi áhrif á allar fiskiveiðar 24 STEFNIR

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1961

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.