Stefnir - 15.08.1947, Qupperneq 35
Erlendar fréttír
Frá fréttaritara vorum í Bretlandi
NÝ TÍMAMÓT — EF VEL VEIÐIST
FEA SlLDARVÍGSTÖÐVFNLM
„Vér neitum að veiða jyrir síldarmjölsverlcsmiðjumar“
Ef hin 230 síldveiðiskip, sem fóru héðan og frá Fraserburgh til
miðanna í dag koma aftur í fyrramálið með það mikinn afla,
að „afgangur“ verður, — og allt útlit er fyrir góð aflaskilyrði — þá
mun ósamkomulagið milli Matvælaráðuneytisins og síldveiðimanna
komast á hæsta stig.
Þetta byíjaði í síðastliðinni viku, þegar sjómenn hentu 200 tonn-
um af síld í sjóinn, af því að hæsta verðið sem þeir gátu fengið var
30s fyrir málið (cran), sem er verð það, er ráðuneytið hefur ákveð-
ið fyrir síld, sem er send til verksmiðjanna til vinnslu í smjöriíki, olíu
og fiskimjöl. Og þetta verð verður þeim boðið aftur á morgun ef
þeir hafa mikinn „afgang.“
Þegar talað er um afgang, er átt við það magn síldar, sem er fram-
yfir það, sem fer í „freshing“ (síld, sem er send beint í búðirnar,
reykingu, verkun og niðursuðu, m. ö. o. á matvælamarkaðinn. —
Framleiðsla á olíu og mjöli er önnur leiðin, og síðan vandræðin
byrjuðu, hefur ráðuneytið ekki gert neitt til þess að hækka verðið.
Til samanburðar fást 85s lOd til 89s lOd fyrir málið af „freshing“
og síld í reykingu, 70s í niðursuðu og 55s til verkunar. Nú er spurn-
ingin hvort sjómenn taka boðinu um 30s, eða kasta síldinni í sjóinn
aftur. I gær sögðust þeir ekki vita hvað þeir mundu gera. The
Herring Industry Board vilja engar upplýsingar gefa í málinu. 30s,
eða kasta síldinni í sjóinn aftur? I raun og veru er búið að selja
magn, sem álitið er að muni nema 2,000 málum, sem afgang til
verksmiðjanna síðan vertíðin byrjaði fyrst í síðastliðnum mánuði,
STEFNIR
31.