Stefnir - 15.08.1947, Qupperneq 37
hann í verksmiðjurnar fyrir 80s. En ég vil ekki ganga inn á að veiða
í'yrir síldarmjölsverksmiðjurnar. Sjómenn munu aldrei samþykkja
það. Sú var tíðin, að veiðar héldu áfram óhindrað og vertíðin var
11 vikur. Verðið var lágt, og það var varla hægt að draga fisk úr
sjó þegar kornið var fram í miðjan ágúst. Þá var búið að hreinsa
sjóinn.
Alexander Bruce, skipstjóri frá Peterhead, svo og allir aðrir sjó-
menn, sem ég talaði við, taka undir þetta: „Við viljum láta afganga
í síldarmjöl, á 30s, en við viljum ekki veiða í mjöl. Við viljum ekki
tæma sjóinn.“
Þetta er þá útkoman: Ef mönnum virðist magn „afgangsins“ vera
sanngjarnt í hlutfalli við tölu báta þeirra, sem stunda veiðar, þá er
allt í lagi, láta bara verksmiðjurnar fá afganginn á 30s. En málið er
ekki alveg svona auðvelt ef afgangurinn nemur 1,000 málum (cran)
á einum degi.
Schottish Daily Express, 20. júní 1947.
*
Eire ætlar að ganga ríkt eftir alþjóðalögum um 12 mílna Iand-
helgi fyrir útlend skip, sem veiða við strendur þess, í þeim tilgangi,
að hindra veiðar spænskra togara.
Empire News, Mancheser, 8. júní 1947.
*
Dr. Summerskill, Parliamentary secretary to the Ministry of
Food, skýrði neðri málstofunni frá því, að verð á öllum fiski yrði
endurskoðað í haust, og þá muni einnig fara fram rannsókn á fiski-
atvinnuveginum við strendur Bretlands.
Þetta var svar við fyrirspurn Cmdr. Marshall (Cons. Bodmin),
sem hafði lagt áherzlu á, að hámarksverðið yrði hækkað, sökum
aukins kostnaðar.
Neðri málstofa brezka þingsins.
*
33
STEFNXR