Bergmál - 05.01.1954, Síða 10
B E R G M Á L-------------------
ingu fyrir vel unnið verk. Síðan
sendi hún rakarann á brott en
gekk stærilætislega hringinn í
kringum fangana.
„Svo að þér gerðust nærgöng-
ulir við konu, sem var farþegi á
skipinu,“ sagði hún.
Hawke hristi höfuðið. „Nei,
það er ekki satt, ungfrú. Ég get
fullvissað yður um að svo var
ekki. Ég lenti ekki í neinum
vandræðum í umgengni minni
við hana, enda þótt henni megi
um kenna hversu komið er fyrir
mér. Ég lendi aldrei í erfiðleik-
um vegna kvenna, aldrei.“
Spitfire skipti litum. Hún var
reið. „Það má vera að þér hafið
ekki lent í vandræðum vegna
kvenna hingað til, en mér segir
svo hugur um, að svo geti farið,
og það mjög bráðlega.“
„Ekki get ég breytt skoðunum
yðar, ungfrú, en ég álít þó, að
þér getið litlu um það spáð,“
svaraði hann glaðlega. „Ég þori
meira að segja að fullyrða, að
þér þekkið karlmenn ekki meira
en það, að þér hafið í mesta lagi
kysst á kafloðinn vanga eða síð-
an hökutopp.“ Um leið og hann
sagði þetta leit hann á hóp af
alskeggjuðum sjóræningjum,
sem stóðu álengdar og virtust
vera að reyna að fylgjast með
því hvað fram færi á milli þess-
--------------------- JANÚAR
ara tveggja andstæðinga, en
bæði virtust geta verið hörð í
horn að taka.
Spitfire stóð hreyfingarlaus
andartak. „Ef til vill er þetta
rétt hjá yður,“ sagði hún, „en
úr því er auðvelt að bæta.“ Hún
gekk að honum, róleg og óþving-
uð og kyssti hann beint á munn-
inn.
„Þér ættuð ekki að gera yður
neinar grillur, Hawke liðsfor-
ingi,“ sagði hún um leið og hún
gekk á brott. „Það má vera, að
ég geti haft gagn af yður um
borð í skipi mínu, þegar ég verð
þess fullviss, að hægt sé að
treysta yður. Að öðrum kosti
munuð þér komast að raun um,
að það er óþægilegt að vera
bundinn á höndum og fótum og
reyrður við fjörustólpa. í kvöld
verður gert út um það.“
Framh. í næsta hefti.
Hawke og hinir tveir félagar hans
hafa komizt heilu og höldnu inn í
vígi sjóræningjanna. En óvíst er
hvernig þeim reið'ir af, er strand-kaf-
teinarnir taka þá til yfirheyrslu. Lesið
um það í næsta hefti Bergmáls. Og
jafnframt hversu hinum brezka liðs-
foringja reiðir af í viðureign sinni við
sjóræningjaprinsessuna, konuna, sem
var einn af hættulegustu fjendum
lands hans.
8