Bergmál - 05.01.1954, Blaðsíða 43
B E R G M Á L
1954
★ Farþegaflugvélar verða ekki
mjög stórar, og lúxus-tækj-
um, svo sem kvikmyndasöl-
um eða sundlaugum verður
ekki komið fyrir í þeim.
Slíkar innréttingar munu
ekki svara kostnaði, vegna
þess hve flugtíminn verður
stuttur.
Severskij álítur einnig senni-
legt, að tunglflug og hnattflug
yfirleitt verði framkvæmanlegt
innan 50 ára, en hann álítur, að
hnattflugsfarartækin verði ekki
rakettur — heldur sérstakar
flugvélar með atóm-mótorum og
væntanlega muni þær ná 200.000
kílómetra hraða á klukkustund,
en með þeim hraða gætu menn
brugðið sér til tunglsins eftir
morgunkaffið og verið komnir
heim aftur í hádegismatinn.
Peter G. Masefield forstjóri
hjá British European Airways
álítur, að eftir 50 ár muni verða
flogið yfir Atlantshafið á einni
klukkustund og að farmiðarnir
verði þá ódýrari en þriðja far-
rýmis iárnbrautarfarmiðar eru
nú.
Masefield álítur enn fremur,
að innan 50 ára verði búið að
finna upp aðferðir til að láta
flugvélar lenda á mjög litlum
flugvöllum, og hinir víðáttu-
miklu flugvellir verði afnumd-
ir, en flugvélarnar setjast inn í
hjarta stórborganna á svolítinn
blett.
í Bretlandi vinnur „Flug-
mála rannsóknarráð“ nú þegar
að þessu lendinga-vandamáli —
meðal annars með því að láta
flugvélar lenda á gríðarstóru
„teppi“, sem framleitt er úr
einskonar gúmílérefti, sem
strengt er út og kamur ekki við
jörð.
Hann Bjössi er talinn mesti grallari
og því til sönnunar get ég sagt ykkur
það, að hérna um daginn hjólaði hann
á ógurlegu spani eftir gangstéttinni,
en mætti svo allt í einu gamalli konu
með mjólkurflösku. Þá snarbremsaði
Bjössi, en vegna þess hve kastið 6
honum var óskaplegt steyptist hann
beint á hausinn fram af hjólinu og
blóðgaði sig allan. Um leið og hann
brölti bölvandi á fætur, gekk gamla
konan með mjólkurflöskuna til hans
og sagði: „Auminginn! Þarna datztu
víst illilega af hjólinu."
Bjössi nuddaði blóðið af nefinu á
sér í ermina og hnussaði: ,.Nei, ónei,
gamla mín, svona fer ég alltaf af
baki.“
★
Auglýsing úr tízkublaði:
„Nýju sokkarnir okkar, sem heita
„Superia", eru glæsilegustu kvensokk-
ar, sem hægt er að hugsa sér, næfur-
þunnir en þó teygjanlegir. Þær konur,
sem hafa reynt þá eru svo hrifnar af
þeim, að þær ganga ekki í neinu öðru.“
★
<
41