Bergmál - 05.01.1954, Side 11
HEILABROT:
Þessi þáttur Bergmáls — heilabrotin
— hafa notið allmikillar hylli, einkum
verðlaunaheilabrotin, ef dæma má
eftir hinum mörgu ráðningum, sem
berast mánaðarlega. Þó hafa fáeinir
lesendur sent gagnrýni, sumum finnst
heilabrotin of létt og auðráðin, aðrir
hafa gagnrýnt þau fyrir hve þung og
erfið þau séu. Verður því væntanlega
sú reyndin á, að þau verði framvegis
með svipuðu sniði og verið hefir. —
Gott væri ef lesendur vildu leggja
þessum þætti lið, með því að senda
heilabrot til birtingar, gegn því að fá
hvert það hefti að verðlaunum, sem
flytti heilabrot þeirra. —-----Nýja
árið byrjum við hér, með gamalli ís-
lenzkri gátu, enda þótt hlutur sá, sem
geta skal samkvæmt upplýsingum gát-
unnar sé vart almennt í tízku lengur.
Gátan hljóðar svo:
Forakta mig flestir á daginn,
fussa ef þeir sjá mig um bæinn,
en hafa beztu not mín um nætur,
þá nenna ekki úr rúminu á fætur.
2. Allir kannast við rófu á ketti, sem
og fleiri dýrum. Og allir vita að
rófa er nefnd ýmsum fleiri nöfnum
á íslenzku. Munið þið eftir 7 öðrum
orðum, sem tákna eiginlega það
sama og rófa?
Gefið ykkur 2 mínútur til að rifja
upp þessi sjö orð.
3. Hér sjáið þið eitt algengt orð, sem
kemur undarlega fyrir sjónir vegna
þess að stafaröðin hefir ruglazt.
U KKK ÖL DDD ÆR
Upplýsingar: Þannig er karlmað-
urinn oft í samkvæmum.
4. Þórður — er algengt karlmanns-
nafn, sem þið þekkið öll, en getið
þið nefnt 8 nafnorð í nefnifalli,
sem mynduð eru aðeins með stöf-
unum í orðinu — Þórður — ef hver
stafur er aðeins notaður einu sinni
í hverju orði?
5. Hvernig mynduð þið skipta 55
krónum á milli fjögurra manna, ef
Hafliði ætti að fá helming á við Jón
og þó 2 krónur að auki, Kjartan
ætti að fá þriðjung þess sem Haf-
liði fær og 3 krónur að auki, og
Davíð ætti að fá fjórðung þess,
sem Kjartan fær og fjórar krónur
að auki?
6. Bætið tveim stöfum framan við
hvert eftirfarandi orða (eppa),
þannig að fram komi orð, sem
tákna hið sama og orðin aftan við
jafnaðarmerkið.
. ...eppa = láta af hendi
.... eppa = f esta
.... eppa = örðugleikar
. ...eppa = dansa
.... eppa = kornmælir
Svör á bls. 64.
VerSIaunaheilabrot:
Aðgöngumiðar á félagsskemmtun
voru seldir á kr. 25.00 fyrir manninn.
Skemmtinefndin áætlaði að 3/^ af fé-
lagsmönnum mundu mæta á skemmt-
uninni og hefðu þá komið inn
kr. 400.00 umfram áætlaðan kostnað.
Nú mætti aðeins helmingur félags-
manna og jafnframt fór kostnaður
9