Bergmál - 05.01.1954, Síða 24
B E R G M Á L-------------------
hríð farið, heyrðu þau köll of-
an frá fjallsbrúninni. Hróp
manna. Það var einkennilegt.
Nú höfðu þau verið á flótta dög-
um saman og Gabriel hafði alls
ekki gert ráð fyrir þessu. Af ein-
hverjum ástæðum hafði honum
varla flogið sá möguleiki í hug,
að þeim væri veitt eftirför.
Hugsunin hafði nær eingöngu
snúist um það, að komast sem
fyrst norður til þess að geta
sýnt Mörtu land móðurfrænda
sinna. Gamla, góða landið..
Gabriel leit við og sá þrjá
menn.
„Nemið staðar,“ Gabriel
þekkti rödd liðþjálfans og jafn-
skjótt varð honum ljóst, að nú
yrðu þau að forða sér á hlaup-
um.
„Haltu áfram, Marta,“ sagði
hann. Hún hikaði. Hann ýtti
stefni bátsins hranalega í bakið
á henni. Hún hljóp áfram á
undan honum niður eftir snar-
bröttu einstigi milli tveggj a
klettaveggja. Þetta var grýtt og
mjög ógreiðfær leið.
Aðvörunarskot þutu yfir
höfðum þeirra. Líklega skjóta
þeir Mörtu, hugsaði . Gabriel.
„Þeir skjóta hana áreiðanlega.“
Vesalings Gabriel skildi bæði
náttúruna og dýrin, en hann
skildi ekki menn.
___________________ JANÚAR
„Stanzaðu, Marta,“ hrópaði
hann. „Leggstu niður, Marta.“
Hún gerði eins og hann sagði. Á
fallega andlitinu hennar sázt
hræðslusvipur. „Farðu þarna
inn,“ sagði hann og ýtti henni
í ofboði inn í allstóra kletta-
sprungu. Hann hafði lagt frá
sér bátin. Þarna inni í kletta-
sprungunni var hún alveg örugg
fyrir skotum.
Gabriel gægðist fram fyrir
klettasnös og miðaði riffli sín-
um. Skotfærið var um þrjú
hundruð metrar. Mennirnir þrír
báru enn við himinn. Gabriel
miðaði á annan stóra manninn,
annan þeirra, sem hann var viss
um að ekki væri liðþjálfinn.
„Ég skal sýna ykkur,“ sagði
hann. „Ég skal sýna ykkur hvað
það kostar að skjóta á mig að
fyrra bragði.“ Hann hleypti af.
Skotið bergmálaði í fjöllunum,
en kúlan missti marks og þyrl-
aði upp grjóti og sandi við hlið
mannsins.
Skógarvörðurinn, hugsaði Ga-
briel, er mennirnir þrír hurfu á
andartaki eins og jörðin hefði
gleypt þá. Hann sá fyrir sér, er
skógarvörðurinn hafði dansað
við Mörtu, dansað og dansað.
Hann hataði skógarvörðinn.
Hann hataði liðþjálfan lítið.
Hann hataði Joe alls ekki,
22