Bergmál - 05.01.1954, Síða 27
B E R G M Á L
1 9 5 4 ------------------------■
jafnan til reiðu tennisvöllur og
badminton og krikket, bezti
matur, sem hægt var að hugsa
sér, var þarna á boðstólum og
við barinn voru ætíð ótæmandi
drykkj arf öng.
„Og nú, herrar mínir og frúr,
fáið þið að sjá tvö heljarstökk
aftur á bak, með vatnsglös í
báðum höndum,“ þetta var rödd
Tona. Og vitanlega heyrðust
gleðihrópin í Söru strax á eftir.
Anna sló púður-kvastanum á
nefið. Hún hafði komið að jafn-
aði í sunnudagsheimsóknir til
Láru síðastliðna sex mánuði. En
hún vissi ekki hvernig slíkt átti
að geta haldist, eða yfirleitt,
hvort hún kæmist eitt eða ann-
að á næstunni, því að hún hafði
ekki fengið nema eitt einasta
hlutverk síðan hún kom til
Hollywood, og það var allt út-
lit fyrir að þar með væri leik-
listarferli hennar lokið.
Ef Dan Gordon hefði ekki
misst atvinnuna við að spæja
fyrir eitt kvikmyndafélagið, þá
var ekki ósennilegt að líf henn-
ar væri öðru vísi nú. Dan hafði
sagt, að hann hefði tröllatrú á
henni, og það hafði verið hann,
sem útvegaði henni þetta eina
hlutverk, sem hún hafði fengið.
En allir þeir forstjórar og undir-
forstjárar og aðstoðarforstjórar,
sem hún hafði talað við síðan,
virtust önnum kafnir við að dázt
að öllum öðrum, heldur en ein-
mitt henni. Og nú var Anna
komin fjári nærri því stigi, að
missa alla trú á sjálfri sér.
Það er indælis púður, sem 'hún
Lára á, hugsaði Anna. Heppilegt
var að þær skyldu einmitt nota
sama lit.
Anna var ennfremur farin að
nálgast það stig, að geta ekki
lengur greitt húsaleigu, eða
fæði sitt.
Anna teygði fram hökuna
framan við spegilinn. Þetta var
falleg haka og hún var hluti af
fallegu andliti, — það voru ekki
nema fjögur ár síðan hún hafði
verið talin fegurst af öllum
ungu stúlkunum í háskólanum
heima í Newton. Líkami hennar
var ekki síður fagur. Anna
þurfti ekki að standa upp til að
sannfæra sig um það. Hún
þurfti heldur ekki að láta segja
sér það, að hún hefði hæfileika.
Hið eina, sem hún þarfnaðist
var tækifæri til að sýna það og
sanna.
En það sögðu reyndar allir, að
hver einasta lagleg stelpa héldi
að hún gæti orðið kvikmynda-
leikkona bara ef hún kæmist
til Hollywood, og að nokkrum
mánuðum liðnum áttuðu þær
25