Bergmál - 01.04.1954, Síða 2

Bergmál - 01.04.1954, Síða 2
ÚR VÍSNAKVERI FORNÓLFS Gamanvísur: Að mæla finn ég mér ei skylt meira en þarf að segja, ekki er heldur öllu spilt ef menn kunna að þegja. Eitt er að finna orðum stað, annað að belgja gúla. En gömul kynni gera það, ég get ekki haldið túla. Gtal verða umskiptin og ýmsar leiðir farnar, — bila sjaldan, Bjössi minn, bernskuminningarnar. Man ég forðum marga stund, man ég ótal gaman, þegar við með létta lund lékum okkur saman. Æskubrek til gleði gerð get ég fáu spilli, — skemmtileg var skíðaferð skýlaust rökkra milli. Margt er enn á ýmsa lund, sem ekki er hægt að ríma, en er gleymt um eina stund aldrei nokkurn tíma. Skilið hafa okkur ár æfi-langar stundir, óravegir, ægir blár — urðu sjaldan fundir. Oft hef ég munað eftir þér, en alltaf geymt að skrifa, eins og ég hefði ætlað mér alla daga að lifa. Nú er ég orðinn gamall og grár, — gæti farið að raupa. Hvað eru nú mörg eftir ár upp á t-il að hlaupa? Ef ég pára ætla þér, ekki er neins að bíða. Hver veit, hvenær of seint er, ef að stundir líða? Dragsúgur: Enn þá er hann ekki hlýr úti frost og bylur, veltir sjó, en veðra gnýr vondan galdur þylur. Hörð eru kára handtökin, húsum vindar rugga, nepjan æpir náhljóð inn, næðir um hurð og glugga. Ofninn hefir ekki við upp að þýða skjáinn, Hamslaust sogar hvassviðrið hitann út í bláinn. Einhvern tíma eins þér fer í æfinkólguhríðum, eldurinn kulnar — ylinn þver, — þótt eitt sinn brynni á skíðum. —o— Þrútnar ver, en vogar dynja veltur brim að ströndinni, mæðir siglur, steinhlöð stynja , stendur Rán á öndinni. Þrumi ég vínlaus, þyrstur, rámur, þunnur, sljór og kuldablár, gneipur eins og Skröggur og Skrámur. sköllóttur og hærugrár. —o— Stefni að þér darra dríf, að duga er bezt og þegja: annað hvort er þér ætlað líf eða þá að deyja.

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.