Bergmál - 01.04.1954, Side 8

Bergmál - 01.04.1954, Side 8
Bergmál --------------------- höllina á ný og inn í salinn og þá heyrSi hann húsmóðurina spyrja: „Hvað var það?“ „Sendiboði kom með þetta skjal og sagði að það væri áríð- andi orðsending,“ svaraði þjónn- inn. „Eldri bróðirinn á að láta rigna hér í héraðinu á sjö fer- mílna svæði, umhverfis fjöllin og regnið á að stytta upp fyrir dögun. Hann á að gæta þess að ekki rigni svo mikið. að upp- skera bændanna sé í hættu.“ „Hvað get ég gert?“ sagði hús- móðirin æst og bar hratt á. „Þeir eru báðir fjarverandi og það er of seint að senda eftir þeim. Ég hefi engan annan til að senda.“ „Gætuð þér ekki beðið nætur- gest yðar að gera það?“ spurði þjónninn. „Hann er þróttmikill og góður veiðimaður. Hann ríð- ur góðum hesti.“ Húsmóðirin gladdist mjög við þessa uppástungu og fór beina leið til svefnherbergis Li og knúði dyra. „Eruð þér vakandi?11 „Hvað get ég gert fyrir yð- ur?“ svaraði Li. „Gjörið svo vel og komið fram„ ég þarf að ræða við yður.“ Li fór strax fram úr rúminu og gekk fram í salinn. Húsmóðirin hóf þegar máls: ------------------------Apríl „Þetta er ekki neitt venjulegt hús. Þér gistið Drekahöllina. — Mér hefir borist skipun af himn- um ofan um að láta rigna nú þegar og fram til dögunar, en ég hefi engan, sem ég get sent. Eldri sonur minn er í brúð- kaupsveizlu úti í Austursjó og yngri sonur minn fylgir nú systur sinni á langferð. Þeir eru þúsundir mílna í burtu og það er of seint að gera þeim boð. Vilduð þér gera mér þann greiða að taka starfið að yður? Það er skyldustarf okkar að láta rigna og sonum mínum mun verða hegnt, ef þeir framkvæma ekki þessa fyrirskipun.“ Li varð bæði undrandi og glaður yfir þessari nýstárlegu beiðni. „Mér væri ánægja að því að geta gert þetta fyrir yður, frú, en til slíkra framkvæmda skort- ir mig bæði getu og þekkingu. Því að ég geri ráð fyrir að kom- ast þurfi ofar skýjum til þess að láta rigna.“ „Ég geri ráð fyrir að þér get- ið setið góðan hest.“ „Vissulega.“ „Það nægir. Allt, sem þér þurfið að gera, er að stíga á bak hesti, sem ég mun fá yður — ekki á bak yðar eigin hesti — og fara því næst eftir fyrirmæl- 6

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.