Bergmál - 01.04.1954, Side 9

Bergmál - 01.04.1954, Side 9
1 954 ------------------------ um mínum. Það er mjög ein- falt.“ Hún skipaði nú svo fyrir, að hesturinn skyldi söðlaður. Var það stór og fallegur, hrafn- svartur gæðingur, faxprúður mjög. Fékk Li svo litla flösku með vatni, sem hún sagði hon- um að festa við söðulbogann. „Þetta er vígður foli,“ sagði hún. „Þér þurfið að halda laust við hann og láta hann þeysa hvert sem honum sjálfum sýn- ist. Hvetjið hann ekki. Hann ratar leiðina. Þegar hann lemur niður fótunum, þá takið þér þess vatnsflösku og látið einn dropa drjúpa á makka hans. En gætið þess vel að láta ekki of mikið drjúpa. Gleymið því ekki.“ Li sté á bak hinum helga hesti og hélt af stað. Hann undraðist hraða hestsins og öryggi. Er hann hafði skammt farið, jók hesturinn hraðann og hélt hon- um, og Li hafði það á tilfinn- ingunni, að þeir væru að klifra upp á við. Er hann nú svipaðist um, sá hann að þeir voru komn- ir ofar skýjum. Snarpur, rakur vindur Lék kröftuglega um and- lit hans, en undir fótum hans kváðu við þrumur og leiftruðu eldingar. , í hvert skipti, sem hesturinn nam staðar og lamdi niður hóf- ------------------ Bergmál unum, lét hann einn dropa drjúpa úr flöskunni á makka hans, eins og hann hafði fýrír- mæli um . Að nokkrum tíma liðnum vildi svo til að elding klauf skýin neð- an við hann og sá hann þá beint niður á þorpið, sem hann var vanur að gista í á veiðiferðum sínum. „Ég hefi angrað gömlu konuna og þorpsbúa alla og verið þeim til byrði — hugsaði hann. „Mig hefir lengi langað til að endur- gjalda þeim gestrisni. þeirra og alúð, og nú hefi ég á valdi mínu áð láta rigna. í gærdag sá ég að uppskera þeirra var að skrælna úr þurrki á ökrunum, blöðin voru jafnvel farin að gulna. Ég ætla að láta drjúpa svolítið meira úr flöskunni fyrir þetta góða fólk.“ Hann lét tuttugu dropa drjúpa yfir þorpinu og hlýnaði honum um hjartaræturnar þegar hann sá regnið steypast niður. Er þessu var lokið, sneri hann til baka til Drekahallarinnar. Húsmóðirin sat grátandi í stól sínum er Li kom in í salinn. „Þér hafið gert hræðilega skyssu,“ hrópaði frúin er hún sá hann. „Ég sagði yður að láta aðeins einn dropa af vatni drjúpa á hverjum stað, en þér hafið víst 7

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.