Bergmál - 01.04.1954, Page 10

Bergmál - 01.04.1954, Page 10
Bergmál -------------------- helt helmingnum úr flöskunni miður. Þér vissuð ekki, að einn dropi af þessum vökva orsakar eitt fet af regnvatni á jörðina. Hve marga dropa létuð þér drjúpa?“ „Aðeins tuttugu,“ svaraði Li, fremur sneypulegur. „Aðeins tuttugu! Getið þér gert yður í hugarlund hvernig þorpið verður úti, sem fær tutt- ugu fet af regnvatni á einni nóttu? Allir íbúarnir munu drukkna og allur búpeningur farast. Að sjálfsögðu mun verða gefin skýrsla til Himna og syn- ir mínir verða gerðir ábyrgir fyrir þessu slysi.“ Li skammaðist sín mjög og vissi ekki hvað hann átti að segja, annað en það að hann iðr- aðist framkomu sinnar. En auð- vitað var það of seint. „Ég álasa yður ekki. Því að þér vissuð ekki hvað þér voruð að gera. En ég er hrædd um, að það verði ekki ánægjulegt fyrir yður, er Drekinn kemur heim. Því vil ég ráðleggja yður að fara héðan þegar í stað.“ Li varð snortinn af vinsemd konunnar og bjóst þegar til brottfarar. Það var komið að dögun. Hann gladdist yfir því að sleppa á brott svo auðveld- lega, en honum til mikillar -----------------------Apríl undrunar sagði konan er hann var að kveðja: „Ég ætla að end- urgjalda yður þann greiða, sem þér gerðuð mér. Ég hefði ekki átt að biðja gest minn að klæð- ast um miðja nótt. Svo að sökin er mín. Hér í óbyggðunum hefi ég engar dýrmætar gjafir til að leysa yður út með, en ég get lát- ið yður í té tvo þjóna. Þér get- ið tekið þá báða, eða ef þér viljið heldur aðeins annan, þá þann þeirra, sem þér kjósið heldur.“ Li leit á hina tvo þjóna, sem stóðu sinn hvoru megin við hana. Sá þeirra, sem stóð að austanverðu í salnum, var vin- gjarnlegur og auðmjúkur á svip. En sá, sem stóð að vestanverðu í salnum var kraftalegur ná- ungi, hraustlegur og ekki laus við að vera grimmdarlegur. Li hugsaði með sér, að gott myndi að eiga þjón og auk þess fannst honum að gaman væri að eiga eitthvað til minningar um þessa einkennilegu nætur- gistingu. „Ég vil gjarnan þiggja annan þeirra,“ sagði hann. „Eins og yður þóknast. Velj- ið annan,“ svaraði húsmóðirin. Li hugsaði sig um. Sá vin- gjarnlegi var greindarlegur og viðfelldinn að öllu leyti, en varla yrði hann til mikils gagns 8

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.