Bergmál - 01.04.1954, Blaðsíða 24
S JÓRÆN-
ING JA-
PRINS-
ESS AN
Nú hefur kvikmyndin, sem
gerð var eftir þessari sögu ver-
ið sýnd á Hafnarbíói í Reykja-
vík við mikla aðsókn, enda var
hún mjög skemmtileg eins og
vænta mátti.
Þá munduð þér samt fá að
hanga í gálganum og það þótt
hver einasti maður í öllum
brezka flotanum þyrfti að leggja
fram sinn skerf í sameiginlegu
átaki við að svæla yður út úr
greninu.
„Heyrðuð þér þetta, kafteinn,“
sagði Hawke í hálfum hljóðum,
„hún er á sömu skoðun og ég í
þessum efnum.“ Brasiliano
virtist dálítið áhyggjufullur. En
svo hló hann hryssingslega. „Við
sjáum nú til,“ sagði hann.
„Höggvið skipið frá — fljótir
nú.“
„Hvað hafið þér í hyggju að
gera við þessar ungu stúlkur,
sem eru undir mínum verndar-
væng?“ spurði Melvina Mac
Gregor.
„Ég mun ekki gera þeim neitt
til miska,“ sagði Brasiliano.
„Það er hægt að fá geypiverð
fyrir þær, því að margir munu
girnast þær fyrir eiginkonur. Og
þér,“ hann horfði glettnislega á
hina skozku hefðarkonu frá
hvirfli til ilja, „þér þurfið engu
að kvíða.“
Áður en henni gafst tími til
að svara var hann genginn á
brott frá henni og öskraði nú
fyrirskipanir til skipshafnar
sinnar um að sigla sem skjótast
á brott er kveikt hefði verið í
indverska skipinu.
Þegar skozka hefðarkonan sá
að logandi kyndlar voru bornir
að hinu skipinu tók hun við-
22