Bergmál - 01.04.1954, Qupperneq 27
1 95 4 ------------------------■
„Já, auðvitað,“ svaraði hún,
dálítið óþolinmóð.
„Hann ' mun gefa mér gim-
steininn, og svo gef ég yður
hann.“
„Hvað heitið þér, ungfrú góð,“
spurði Hawke mjög lágt. —
Unga stúlkan hnyklaði brýnn-
ar. „Ég man ekki hvað Melvina
Mac Gregor vildi að ég kallaði
mig. En ég man það, að ég mátti
alls ekki segja að ég heiti í raun
og veru Patma, prinsessa af
Ormuz.“
Hawke svipaðist um í skyndi
og sá, að til allrar hamingju var
enginn á ferli. Hann hló lágt
en glaðlega og gerði sér vel ljóst
hvers virði þessar fréttir voru.
„Nei, ungfrú góð,“ sagði hann,
„Það megið þér alls ekki
segja nokkrum öðrum. Það er
alveg áreiðanlegt.“
KONUR TIL SÖLU
Það varð uppi fótur og fit er
Brasiliano kom til heimahafnar
með ránsfeng sinn, — einkum
er það vitnaðist, að margar ung-
ar stúlkur væru innanborðs.
Spitfire fann til afbrýðisemi í
fyrsta skipti á æfinni er hún
frétti að Hawke hefði bjargað
lífi hinnar fegurstu af þeim öll-
------------------ Bergmál
um, og ekki bætti það úr skák,
að hann gerði enga tilraun til að
ná tali af henni, eða heilsa upp á
hana eftir útivistina. Af tilvilj-
un komst hún þó að því, að
Brasiliano hafði að yfirlögðu
ráði komið í veg fyrir það, að
stýrimaður hans næði fundi
hennar með því að krefjast þess
að hann héldi kyrru fyrir um
borð og gerði nákvæma skýrslu
yfir allt herfangið, sem þeir
höfðu tekið í indverska skipinu.
Hawke varð því í raun og veru
feginn, að fá þá hvíld, sem þetta
starf veitti honum. Skipið var
mannlaust og hann hafði því
gott næði til að skipuleggja í
huganum þau störf, sem hann
hugðist framkvæma á næstunni.
Við þessar ráðagerðir naut hann
aðstoðar félaga sinna Jones og
Harris, því að þeim hafði á ein-
hvern hátt tekizt að útvega sér
atvinnu við að mála skipið að
utan, og renndu sér í hengistól-
um sínum niður með skipshlið-
inni og töluðu á þann hátt við
Hawke gegnum gluggann á ká-
etu hans.
„Við höfum náð nákvæmu af-
riti af uppdrættinum á meðan
þér voruð fjarverandi, herra
Hawkes,“ hvíslaði Harris í flýti,
„og við munum nú nákvæmlega
staðsetningu allra fallbyssanna.
25