Bergmál - 01.04.1954, Síða 30
Bergmál ----------------------
þegar þessum störfum er lokið,
þá á ég enn ógert ýmislegt varð-
andi kvenmann, eða öllu heldur
varðandi konur!“
Hann vissi ekki hvort Spit-
fire hafði heyrt síðustu orð hans,
því að hurðin skall að stöfum á
eftir henni.
En daginn eftir komst hann
að þeirri niðurstöðu, að hún
hlyti að hafa heyrt hvað hann
sagði. Hawke gekk yfir að mark-
aðstorginu, en þar voru ind-
versku stúlkurnar, sem þeir
höfðu tekið herfangi á skipi
Mógúlsins, boðnar upp og seld-
ar hæstbjóðanda. Þær áttu að
verða eiginkonur sjóræningj-
anna. Ein af annarri voru þær
leiddar upp á uppboðspallinn
og boðið var ört og græðgislega
í þær.
Hawke stóð lítið eitt til hliðar
við mannþröngina og horfði á
það, sem fram fór. Hann hafði
sjáanlega gaman af, því að
stúlkurnar, sem í fyrstu vissu
ekki hvað til stóð, voru nú orðn-
ar all-æstar af tilhugsuninni um
að verða að kvöldi orðnar eigin-
konur þessara myndarlegu, fas-
miklu manna frá Vesturlönd-
um.
Það brá fyrir leiftri í augum
hans, er hann kom auga á Spit-
fire, þar sem hún stóð í felum á
---------------------— Apríl
bak við tré nokkurt og starði án
afláts á eina stúlkuna, þá, sem
stóð aftast í röðinni, það var
prinsessan indverska.
Sala stúlknanna gekk greið-
lega, hver einasta var greidd
með heilum fjársjóði gulls og
gersema. Og að lokum kom röð-
in að hinni smávöxnu og fínlegu
Patma prinsessu. Hawke hafði
þegar móttekið sinn launa-skerf
úr herferðinni og var hann stað-
ráðinn í að eyða öllu, sem hann
hafði undir höndum, ef með
þyrfti, til að tryggja það, að
prinsessan lenti ekki í höndum
neins annars en hans sjálfs.
Þegar hann byrjaði að bjóða.
í hana, sá hann sér til ánægju,
að margir voru hálf-hikandi,
tóku upp pyngjur sínar og litu
í þær. Það leit ekki út fyrir að
hann fengi harða samkeppni.
Brátt var hann orðinn einn um
boðið og uppboðshaldarinn ætl-
aði að fara að slá honum hana,
þegar rödd nokkur heyrðist, sem
hækkaði boðið upp í fimm
hundruð Moidres, en það eru
um 75.000 krónur.
Hitler sagði, að jazzinn yrði vinsæll
á meðan menn hlustuðu yfirleitt á
músik með fótunum.
★
28