Bergmál - 01.04.1954, Page 33
1954
fí E R U M 4 L
og ofan við rönd blaðsins sá
hann vel hirt og nýlagt hár,
hvítan blússukraga og dyftað
og snyrt andlit hennar svip-
brigðalaust og kalt. Hún var
alltof vel klædd, snyrtileg og
fögur til þess að sitja inni og
rýna í bók, og hún virti hann
ekki einu sinni viðlits, er hann
rétti út hendina eftir sígarettu,
sem lá við olnbogann á henni á
borðinu.
„Það er naumast, að þú ert
fín,“ sagði hann upprifinn,
„hvert á eiginlega að fara?“
Ekkert svar.
Svo að hún gerði sér þá leik
að því að hundsa hann, — það
var nú það. Hank fann til dálít-
illar gremju. „Hvað er að, ert
þú eitthvað gröm?“ spurði hann
áherzlulaust.
Hún leit ekki upp úr blaðinu.
„Hví skyldi ég vera gröm?“
„Ég hélt að þú vildir koma í
gönguferð“ sagði Hank.
Hún fletti blaði. „Ég hefi
breytt um skoðun.“
Hank leit til hennar. Gremja
hans óx. Skyldi hún ætlast til
að hann færi að sleikja úr
henni, og biðja hana að breyta
aftur um skoðun. Ja, ,þá skyldi
hún svei mér fá að bíða lengi.
Hann henti eldspítnastokknum
á borðið. „Sama er mér“ sagði
hann og gekk fram eldhúsið
á ný.
Þetta var byrjunin. — Engar
skammir eða rifrildi, engar
gagnkvæmar ásakanir, ekki
einu sinni hin þögla ólund, sem
Hank hafði oft undrazt yfir að
hjón gætu fengið sig til að
kvelja hvort annað með. Þau,
hann og Libby, voru kannski
ekki með neitt óþarfa fjas, en
þau töluðu þó saman. Áður-en
þau fóru að borða kvöldmatinn,
spurði Libby hann til dæmis
hvort hann vildi salat með
kalda svínsfleskinu, og hann
svaraði: „Já.“ Og stuttu síðar er
hann spurði jafn blátt áfram
eins og hún hafði gert, hvort
hann ætti að sækja brauð, þá
svaraði hún: „Nei.“ Þau voru,
sem sagt mælandi hvort við
annað.
Og eftir kvöldmatinn hjálpaði
hann henni með uppvaskið, al-
veg eins og vant var. Eini sjáan-
legi munurinn var sá, að þau
luku því á miklu skemmri tíma
en vant var. Hank hafði komizt
að þeirri ánægjulegu niður-
stöðu, að ung kona, sem hefir
báðar hendurnar á kafi í upp-
þvottabala, er næstum varnar-
laus, og sú uppgötvun hafði
gert marga stundina við upp-
þvottabalann, reglulega ánægju-
31