Bergmál - 01.04.1954, Page 35
UR HEIMI KYIKMYNDANNA
Catrin Westerlund verður 19
ára núna í apríl. Hún stundar
nám við leikskóla í Stokkhólmi,
en hefur þó leikið í einni kvik-
mynd, „Lunchrasten“. Hún vakti
þá allmikla athygli, því að sagt
er, að saman fari hjá henni kven-
legur yndisþokki og góðir leik-
hæfileikar.
Ilenni hefir verið líkt við hin-
ar frægu sænsku leikkonur: Mai
Zetteríing og Mai-Britt Nilsson,
og það einkennilega er, að þess-
ar þrjár leikkonur eru allar
fæddar og uppaldar á sömu slóð-
um, eða í suðurhluta Stokkhólms.
Þetta er Jean Hagen kvikmynda-
leikkona hjá M.G.M. í Hollywood.
Hún er 28 ára, gift leikara að nafni
Tom Seidel og eiga þau eina dóttur.
Beztu myndir, sem hún hefir leikið í
eru: „Asfaltskógurinn" og „Rifbein
Adams“.
Auðvitað kannast margir við Dennis
Morgan kvikmyndaleikara hjá Warner
Bros. Hann lék í kvikmyndinni um
líf söngvarans A1 Jolsons.
Dennis er risi að vexti, 197 cm. hár.
Hann er giftur Lillian Vedder og eiga
þau þrjú börn. Dennis heitir reyndar
Stanley Morner og er orðinn 44 ára.
33