Bergmál - 01.04.1954, Side 43
1 954 -------------------------
við gluggann. Og sá því, að
Edyth hafði verið hér inni —
inni í mínu herbergi — og spil-
að á grammófóninn. En hann
hafði staðið óhreyfður allan tím-
ann — síðan hún kom. Og ég
vissi að það hafði verið Edyth,
en ekki einhver annar, því að
platan, sem lá á grammófónin-
um, var einmitt „Sleepy La-
goon“, lagið, sem spilað var
í veizlunni kvöldið, sem ég
kynnti ykkur og þú muldraðir
eitthvað um það að þú yrðir víst
að dansa við hana „skyldudans11.
Þú komst í vont skap, þegar ég
sagði þér frá því, að von væri á
fjarskyldum ættingja í nokk-
urra daga heimsókn. Þú sagðir
að þú „gerðir ráð fyrir“ að nú
yrði allt „breytt“, að ég myndi
verða á eilífum þönum út og
suður með henni, og þú myndir
aðeins fá að sjá mig við og við,
að hún myndi spilla öllu. En
þetta , reyndist ekki alltsaman
rétt, aðeins hið fyrstnefnda og
síðastnefnda.
Við Edyth höfðum ekki sézt
síðan við vorum í skóla. Og á
þeim tíma vorum við aldrei
mjög samrýmdar, en nú, — nú
erum við svarnir féndur, svo
augljóst varð öllum, nema þér
einum. Þú veittir því enga at-
hygli. Hljómsveitin spilaði ein-
----------------- Bergmál
mitt „Sleepy Lagoon“ þegar þú
bauðst Edyth upp. Ég nýt þess
alveg sérstaklega að dansa vals
við þig, og þess vegna var ég
að hugsa um hve glöð ég hefði
orðið ef þú hefðir beðið með
að dansa við hana, þangað til
næst var spiluð „rumba“. Þú
dansaðir þrjá dansa í röð við
hana.
Að lokum voru engir aðrir á
gólfinu, en þið Edyth. Allir
aðrir höfðu tekið sér hvíld og
fengið sér svaladrykk. En þið
tvö hélduð áfram eins og þið
ætluðuð aldrei að hætta.
Þú dansaðir aftur við hana,
síðar um kvöldið, en þó ekki
lengi. Ég sá þig sveifla henni út
um dyrnar út í garðinn. Ná-
kvæmlega eins og þú hafðir gert
við mig þegar þú talaðir við
mig um það, sem ég þráði allt-
af að heyra.
Það voru víst dansaðir tveir
dansar áður en þið komuð inn
aftur. Ég myndi ekki hafa
skeytt því neinu, ef þið hefðuð
komið saman inn gegnum garð-
dyrnar, jafnvel þótt þið hefðuð
leiðst. En þið komuð inn sitt í
hvoru lagi, og það var eins og
þið væruð að laumast. Edyth
kom á undan. Hár hennar var í
óreiðu, og varirnar glóðu. Hún
41